Fréttasafn

  • Haukamenn taka þátt í SÞR 2004

    4 Haukamenn (og 2 í viðbót sem að mæta á æfingar hjá okkur) taka þátt í Skákþingi Reykjavíkur 2004. Þetta eru þeir Heimir Ásgeirsson, Ingi Tandri Traustason, Sveinn Arnarson og Sverrir Þorgeirsson, og svo gestirnir Svanberg Már Pálsson og Halldór Gunar Haraldsson. Þegar þetta er skrifað þá eru 4 umferðir búnar. Heimir er með 3…

  • Skákæfing 13. janúar

    1. Stefán Freyr Guðmundsson 15v af 16 2. Jón Magnússon 13,5 3. Stefán Pétursson 12,5 4. Ingi Tandri Traustason 11,5 5. Sveinn Arnarsson 11 6. Guðmundur 10,5 7. Snorri Karlsson 10 8. Grímur Ársælsson 9,5 9. Ragnar Árnason 8,5 10. Sverrir Þorgeirsson 8 11. Svanberg Már Pálsson 7,5 12. Sverrir 7 13. Páll 3,5 14….

  • Herrakvöld Hauka

    Minnum á Herrakvöld Hauka föstudaginn 16. janúar í veislusalnum á Ásvöllum. Fyrir utan glæsilegan matseðil verða fjölbreytt skemmtiatriði, m.a. Jóhannes Kristjánsson eftirherma, leynigestur, IDOL keppnin á tjaldi ofl. ofl. Þetta er skemmtun sem enginn sannur herramaður má láta fram hjá sér fara. Húsið opnar kl. 19.30 (og lýkur skemmtuninni seinna en fyrr).

  • Haukar-Stjarnan mfl.kvenna

    Árið byrjaði ekki nógu vel hjá stelpunum okkar og áttu þær arfaslakan seinni hálfleik er þær töpuðu illa fyrir Stjörnunni á Ásvöllum í gærkvöldi 22-30. Fyrri hálfleikur byrjaði vel og allt leit út fyrir spennandi og skemmtilegan leik. Stelpurnar okkar skoruðu fyrstu tvö mörkin, Stjarnan jafnaði 4-4. Liðin skiptust síðan á að hafa forystu og…

  • Skákæfing 6. janúar

    Fyrsta skákæfing ársins var haldin 6. janúar og hófst taflið kl: 19:30. Tefld voru tvö mót, fyrra mótið var með 5 mínútna umhugsunartíma. 1. Stefán Freyr Guðmundson 7v af 8 2. Heimir Ásgeirsson 6 3-5. Sverrir Þorgeirsson 5 3-5. Jón Magnússon 5 3-5. Auðbergur Magnússon 5 6. Ingi Tandri Traustason 4,5 7. Snorri Karlsson 2…

  • Flugeldasala Hauka

    Við viljum minna allt Haukafólk á flugeldasölu Hauka og Björgunarsveitar Hafnarfjarðar sem er á Ásvöllum í vallarhúsinu við knattspyrnuvöllinn. Opið er alla daga frá 10:00 til 22:00, nema á gamlársdag, þá er opið til 16:00. Sýnum samstöðu og verslum flugeldana hjá félaginu okkar !

  • Íþróttamaður Hafnarfjarðar

    Í kvöld var Íþróttahátíð Hafnarfjarðar haldin í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Þar var hafnfirsku íþróttafólki veittar viðurkenningar fyrir góða frammistöðu og ástundun og einnig voru heiðraðir þeir sem unnu meistaratitla á árinu 2003. Hápunktur kvöldsins var val á Íþróttamanni Hafnarfjarðar 2003 og kom það fáum á óvart að titilinn hlaut handboltakappinn okkar frábæri, Ásgeir Örn Hallgrímsson….

  • Jólakveðja

    Sendum Haukum nær og fjær sem og öðrum landsmönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsæld og frið á komandi ári. Þökkum stuðning og samstarf á árinu sem er að líða.