Haukamenn taka þátt í SÞR 2004

4 Haukamenn (og 2 í viðbót sem að mæta á æfingar hjá okkur) taka þátt í Skákþingi Reykjavíkur 2004. Þetta eru þeir Heimir Ásgeirsson, Ingi Tandri Traustason, Sveinn Arnarson og Sverrir Þorgeirsson, og svo gestirnir Svanberg Már Pálsson og Halldór Gunar Haraldsson. Þegar þetta er skrifað þá eru 4 umferðir búnar. Heimir er með 3 v. í 5-11 sæti, Svanberg er með 1,5 v. í 30-34 sæti og þeir Ingi, Sveinn, Halldór og Sverrir eru með 1 vining hver í 35-41 sæti.
Við hér munum reyna að fylgjast betur með mótinu og birta nokkrar skákir ef vel tekst til.