Vardar Skopje-Haukar

Leikurinn í Meistaradeildinni hjá stákunum okkar við Vardar Skopje í Makedoníu hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma. Við skulum senda strákunum okkar sterka og góða strauma yfir hafið. Leikurinn verður örugglega erfiður og mjög erfitt er að sækja Makedoníumenn heim.

Eftir 10 mín. leik er staðan 4-5.
Staðan eftir 25 mín er 8-13 og við í góðum málum.
Þá er komin hálfleikur og staðan er 10-15.
Strákarnir eru á leið inní klefa sem sennilega er jafn skítugur og höllin sem spilað er í. Það er lítil stemming í höllinni og fáir áhorfendur sem er ágætt fyrir okkar stráka.

Seinni hálfleikur er hafinn og staðan 15-20 þegar 20 mín eru eftir.
Þegar 10 mín eru eftir er staðan 20-25.

Leiknum er lokið með sigri Hauka 26-32.

Við höfum ekki miklar upplýsingar um leikinn, okkar menn voru að spila ágætlega og stjórnuðu leiknum. Það var frábært hjá strákunum okkar að vinna þarna niðurfrá og afgreiða Makedoníumenn á vellinum, þó svo úrslit leiksins skipti ekki máli um stöðuna í riðlinum. Við hlökkum til að fá þá heim og þeir hlakka örugglega til að komast í siðmenninguna aftur.

Til hamingju með sigurinn strákar, þetta var glæsilegt hjá ykkur.