Haukar eru alltaf bestir

Þessi grein er bönnuð öðrum en Haukamönnum !!!

Það er oft gaman að leika sér að tölum og úrslitum og stundum hægt að fá hvaða útkomu sem er ef hlutirnir eru settir þannig fram. Ef við skoðum úrslit í nokkrum leikjum í Meistaradeildinni getum við sé hvað við Haukar erum rosalega góðir.

Hér eru nokkrar fullyrðingar sem allar eru sannar og réttar. Niðurstöður sem við drögum af hverri fullyrðingu geta menn deilt um. En hvað er lífið án leikja.

1) Haukar unnu báða leikina við Vardar Skopje = Haukar betri en Vardar.
2) Magdeburg vann Vardar á útivelli með 2 mörkum (28-30), Haukar unnu Vardar með 6 mörkum á útivelli ( 26-32) = Haukar betri en Magdeburg !
3) Haukar gerðu jafntefli á útivelli við Barcelona (27-27). Magdeburg tapaði á útivelli fyrir Barcelona með 13 mörkum (38-25) = Haukar betri en Magdeburg !
4) Samkvæmt 2) og 3) hér fyrir ofan eru Haukar betri en Magdeburg. Magdeburg er efst í riðlinum, Barcelona í öðru sæti = Haukar betri en Baracelona.

Niðurstaðan samkvæmt þessu er sú sama og við höfum alla tíð vitað: HAUKAR ERU ALLTAF BESTIR

Eins og fram kom hér fyrir ofan er þessi grein bönnuð öðrum en Haukum. Ef þú ert að lesa þetta án leyfis, þá vinsamlega taktu okkur ekki of alvarlega og leyfðu okkur að njóta sælunnar.