Breiðablik-Haukar mfl.ka.

Strákarnir unnu öruggan skyldusigur á Breiðablik í Smáranum í kvöld. Leikurinn endaði 26-33 og í hálfleik var staðan 10-19.
Leikurinn var frekar daufur á að horfa, strákarnir okkar spiluðu á hálfum hraða enda mótstaðan ekki mikil. Mikið var um mistök hjá báðum liðum og eins hjá þeim svartklæddu.

Það var kannski ekki von á öðruvísi leik hjá okkar strákum eftir stórleik þeirra um síðustu helgi en stigin voru góð þó leikurinn væri lélegur.