Ásta Björt til liðs við Hauka
Ásta Björt Júlíusdóttir hefur gert samning við handknattleiksdeild Hauka um að leika með meistaraflokki félagsins næstu 3 árin. Ásta Björt kemur til liðs við Hauka frá ÍBV þar sem hún er uppalin og hefur leikið allan sinn feril. Ásta Björt er 22 ára örvhent skytta en getur einnig leyst stöðu hægri hornamanns. Ásta hefur nú…
