Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Haukar-Créteil 37-30

    Enn einn stórleikurinn var á Ásvöllum í dag þegar Haukar mættu franska liðinu Creteil í Meistaradeildinni. Strákarnir okkar unnu stórglæsilegan sigur 37-30 og sýndu frábær tilþrif nánast allan leikinn. Leikurinn var lykilleikur fyrir bæði lið og mættu frakkarnir með sitt sterkasta lið en það dugði ekki til á móti öflugu liði Hauka. Strákarnir okkar mættu…

  • Haukar-Creteil Meistaradeildin

    Á morgun kl. 17:00 leika strákarnir okkar síðasta heimaleikinn í F-riðli Meistardeildarinnar. Mótherjarnir eru Creteil frá Frakklandi og og mæta þeir með sitt sterkasta lið svo búast má við mjög erfiðum leik. Við hvejtum alla til að mæta á Ásvelli og styðja við bakið á strákunum okkar. Þeir þurfa virkilega á stuðningi að halda í…

  • FH-Haukar mfl.kvenna

    Stelurnar okkar mættu í Kaplakrika í kvöld og höfðu sigur á móti FH, lokatölur 20-22. FH byrjaði leikinn betur og voru með yfirhöndina framan af hálfleik, en stelpurnar okkar gáfust ekki upp og jöfnuðu rétt fyrir leikhlé. Í síðari hálfleik voru Haukar að mestu með frumkvæðið en þó ekki nema eitt mark. Það var ekki…

  • Bikarstemming á Ásvöllum

    Það var fín bikarstemming í 16-liða úrslitum SS bikarsins á Ásvöllum í gærkvöldi. Kvöldið hófst með leik Hauka2 gegn Bifröst. Okkar “öldnu” strákar byrjuðu leikinn af þvílíkum krafti að gestirnir vissu ekki hvaðan sig stóð veðrið. Staðan orðin 9-1 fljótt í byrjun leiks. Í hálfleik var 23-11 og lokatölur 44-27, glæsilegur sigur hjá Haukum2. Þeir…

  • SS bikar 16-liða úrsl. mfl.karla

    Mfl.karla spilar við Fram í 16-liða úrslitum SS bikarsins kl. 20:30 á Ásvöllum á morgun. Þetta verður mjög erfiður leikur en strákarnir okkar ætla að leggja allt í leikinn því þeir ætla sér áfram. Allir að mæta og styðja strákana okkar áleiðis í Höllina. Kl. 18:30 spila Haukar 2 við Bifröst og við hvetjum alla…

  • Haukar-Sävehof, Meistaradeildin

    Leik strákanna okkar við Sävehof í Meistaradeildinn í dag lauk með jafntefli 35-35. Fyrirfram var vitað að leikurinn yrði mjög erfiður. Svíarnir eru með geysilega sterkt lið og marga landsliðsmenn. Strákarnir okkar voru styrðir í upphafi leiks og það tók þá nokkrar mínutur að komast í gang. Sävehof skoraði fyrsta markið, Haukar jöfnuðu fljótt en…

  • Meistaradeildin Haukar-Sävehof

    Handboltaveislan heldur áfram hjá strákunum okkar en á laugardag eiga þeir heimaleik í Meistaradeildinn gegn sænska liðinu Sävehof. Leikurinn hefst kl. 18:00 á Ásvöllum og hvetjum við alla til að mæta og styðja strákana. Búast má við mjög erfiðum leik þar sem svíarnir eru ansi öflugir. Forsala miða er í SPH Strandgötu og SPH Fjarðarkaupum….

  • Haukar-Fram mfl. kvenna

    Stelpurnar okkar unnu glæsilegan sigur 37-25 á Fram á Ásvöllum í dag. Þær byrjuðu leikinn af miklum krafti og skoruðu fyrstu sjö mörkin, já 7-0 var staðan. Um miðjan fyrri hálfleik var staðan 10-2 og í hálfleik 17-8. Þær juku forskotið í byrjun seinni hálfleiks í tólf mörk 26-14 en slökuðu þá um of á…