Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Creteil-Haukar

    Strákarnir okkar töpuðu 34-31 fyrir franska liðinu Creteil í París í gær. Þrátt fyrir tapið stóðu þeir sig vel á útivelli gegn sterku liði frakkana. Þeir mættu vel stemmdir til leiks og báru enga virðingu fyrir sterkum andstæðingnum. Byrjunin var fín og var leikurinn jafn í upphafi. Með hjálp þeirra gulklæddu seig Creteil framúr, en…

  • Creteil-Haukar, bein útsending

    Í nótt vorum við flest enn í draumaheim þegar strákarnir okkar voru komnir á stjá.Þeir lögðu af stað að heiman fyrir fimm í morgun og lá leiðin fyrst til Keflavíkur og þaðan var flogið til Stokkhólms. Frá Stokkhólmi fljúga þeir til Parísar og er áætluð lending þar kl. 16:35. Leikurinn við Creteil er á morgun,…

  • SS-Bikarinn

    Í dag var dregið í SS-Bikarnum 2004-2005. 16 liða úrslit karla Haukar – Fram Haukar 2 – Bifröst Þróttur Vogum – ÍR Afturelding – HK Grótta KR 2 – KA Þór Ak. – Valur Stjarnan – ÍBV Fylkir – Grótta KR 8 liða úrslit kvenna Stjarnan 2 – Grótta KR Víkingur – Stjarnan ÍBV –…

  • Haukar-Kiel

    Leikurinn við meistara Kiel endaði 28-35 en þrátt fyrir tapið geta strákarnir okkar borið höfuðið hátt. Þeir voru að spila á móti einu albesta félagsliði heimsins í dag, sem í er m.a. stór hluti af sænska landsliðinu. Þeir mættu tilbúnir í leikinn, voru komnir í “Evrópugírínn” og báru enga virðingu fyrir stórstjörnum í liði andstæðinganna….

  • Forsala Haukar-Kiel

    Leikmenn Kiel, mótherjar strákanna í Meistaradeildinni, sátu í háloftunum í dag á leið til landsins. Á meðan stóðu strákarnir okkar í ströngu og seldu miða í forsölunni í SPH í Fjarðarkaupum. Hér má sjá nokkrar myndir af köppunum

  • Haukar-Kiel í Meistadeildinni

    Nú styttist í handboltaveisluna þar sem strákarnir okkar spila við þá bestu í heiminum í Meistaradeildinni. Þeir hafa lagt hart að sér til að geta att kappi við sterkustu lið Evrópu og á sunnudaginn taka Haukar á móti einu albesta liði heims, Kiel frá Þýskalandi. Leikurinn hefst kl. 20:00 á Ásvöllum og hvetjum við alla…

  • Haukar-Fram mfl.karla

    Strákarnir okkar unnu góðan sigur 31-25 á Fram á Ásvöllum í kvöld. Gestirnir skoruðu fyrsta markið og var það í eina skiptið í leiknum sem þeir voru yfir. Jafnt var 2-2 en þá sigu Haukar framúr og breyttu stöðunni fljótt í 8-4. Í hálfleik var 17-11 og í síðari hálfleik var munurinn mestur 7 mörk….