Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Víkingur-Haukar mfl.kvenna

    Í kvöld spiluðu stelpurnar okkar fyrsta deildarleikinn í vetur við Víking í Víkinni. Þær mættu vel stemmdar til leiks og voru lokatölur 25-31 og öruggur sigur í höfn. Leikurinn lofar góðu fyrir veturinn, stelpurnar okkar byrjuðu betur og höfðu yfirhöndina nánast allan leikinn. Undir lok fyrri hálfleiks náði Víkingur þó að jafna og komast yfir…

  • SS Bikarinn

    SS Bikardrátturinn var í dag : 16 liða úrslit mfl.kvenna Fram – KA/Þór Stjarnan 2 – FH 2 Víkingur 2 – Víkingur FH – Haukar Liðin sem sitja hjá ÍBV Valur Grótta KR Stjarnan Leikið verður 5. og 6. október 32 liða úrslit mfl. karla FH 2 – Fram Leiknir – ÍR Grótta KR 2…

  • FH-Haukar mfl.karla

    Strákarnir okkar mættu fullir sjálfstrausts í Krikann í kvöld er þeir sóttu FH heim og unnu öruggan átta marka sigur 34-26. Þeir byrjuðu leikinn af krafti og sýndu mikla yfirburði frá fyrstu mínútu. Um miðjan fyrri hálfleik var staðan 6-12 og grunnurinn lagður. Í hálfleik höfðu strákarnir okkar skorað 20 mörk á móti 11 mörkum…

  • Haukar-HK mfl.ka.

    Strákarnir okkar urðu að lúta í lægra haldi fyrir HK á Ásvöllum í kvöld, en leiknum lauk með sigri gestanna 25-29. Leikurinn var jafn í byrjun í 3-3 en þá náðu Haukar góðu forskoti 8-4. Slökuðu þá á og gestirnir jöfnuðu 9-9 og voru yfir í hálfleik 11-14. HK náði síðan góðu forskoti um miðjan…

  • Adidas skór

    Þeir hjá ADIDAS ætla að bjóða fólki uppá að sér-hanna á sig Stabil V handboltaskó, þeir eru í þeim litum sem kúnninn óskar, sérlagaðir að gerð fótarins og leikmaðurinn setur nafnið sitt og spilnúmer á skóinn. Þetta er ótrúleg snilld og verður í Kringlunni frá þriðjudegi 21. sept til 30 sept. Nánari upplýsingar fást með…