Haukar-Creteil Meistaradeildin

Á morgun kl. 17:00 leika strákarnir okkar síðasta heimaleikinn í F-riðli Meistardeildarinnar. Mótherjarnir eru Creteil frá Frakklandi og og mæta þeir með sitt sterkasta lið svo búast má við mjög erfiðum leik.

Við hvejtum alla til að mæta á Ásvelli og styðja við bakið á strákunum okkar. Þeir þurfa virkilega á stuðningi að halda í erfiðum og mjög mikilvægum leik.

Það er skyldumæting hjá öllum sem vilja styðja veg íslensks handbolta.
Allir á Ásvelli á Haukar-Creteil kl. 17:00 á sunnudaginn.