Í gærkvöldi lögðu stelpurnar úr 3.fl.kv. HK af velli í Faxaflóamótinu á Ásvöllum og unnu góðan sigur 8-1. Það besta við leikinn var hvernig liðið spilaði frá aftasta manni til fremsta manns. Staðan í hálfleik var 4-0 fyrir okkur og var ekki slegið slöku við í þeim síðari nema hvað úthald var farið að segja til sín síðasta korterið. Allt liðið spilaði frábærlega.