Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Fréttatilkynning frá Handknattleiksdeild Hauka

    Aron Kristjánsson tekur við Haukaliðinu í vor Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Aron Kristjánsson um þjálfun karlaliðs Hauka að loknu yfirstandandi tímabili.  Aron tekur við liðinu af Gunnari Magnússyni sem er að ljúka sínu 5 tímabili með Haukaliðið. Aron þjálfaði Hauka síðast fyrir 7 árum og hefur víða komið við síðan þá. Frá þeim…

  • Bikarleikir framundan

    Núna í vikunnu fara fram tveir bikarleikir hjá meistaraflokkum karla og kvenna. Strákarnir ríða á vaðið í kvöld, miðvikudagskvöld, þegar að Fjölnisstrákar koma í heimsókn á Ásvelli kl. 19:30. Það er mikið undir og því um að gera fyrir fólk að fjölmenna á Ásvelli í rauðu til að styðja strákana áfram í bikarnum. Minnum á hamborgaratilboðin…

  • Fram mætir á Ásvelli

    Það er loksins komið að fyrsta leik ársins hjá meistaraflokki karla þegar að þeir fá Fram í heimsókn þriðjudaginn 28. janúar kl. 19:30. Strákarnir töpuðu síðasta leiknum fyrir pásu og mæta því dýrvitlausir á móti sterku Framliði sem sótti í sig veðrið í síðustu leikjum fyrir pásu eftir brösulega byrjun. Það má því búast við…

  • Fyrsti leikur á nýju ári

    Það er loksins komið að fyrsta leik á nýju ári í handboltanum þegar að stelpurnar í meistaraflokki kvenna spila í Olísdeild kvenna. Leikurinn fer fram á morgun, laugardag, þegar að ÍBV kemur í heimsókn á Ásvelli kl. 16:00. Leikurinn er mjög mikilvægur í báráttunni um sæti í úrslitakeppni en með sigri styrkja stelpurnar stöðu sína…

  • BÓNUSMÁNUÐUR

    HSÍ og Bónus í samvinnu við aðildarfélög HSÍ bjóða krökkum í 1.-4. bekk að æfa handbolta frítt í janúar. Einnig fá þeir sem skrá sig frían mjúkbolta. Komdu í handbolta. Smelltu á linkinn til að skrá þig: www.hsi.is. Haukar bjóða alla nýja iðkendur velkomna á æfingu á Ásvöllum við toppaðstæður og með faglega þjálfara í…

  • Herrakvöld Hauka 2020

    Hið árlega herrakvöld Hauka fer fram í veislusalnum á Ásvöllum laugardagskvöldið 25. janúar næstkomandi og opnar húsið kl 19.00. Fjölmennum og eigum góða kvöldstund með góðum vinum Eins og áður eru það Stefán Úlfarsson og meistarakokkarnir á Þremur Frökkum sem sjá um að galdra fram girnilega rétti úr sjávarfangi eins og þeim einum er lagið…

  • Besta íþróttafólk félagsins

    Á gamlársdag fór fram hin árlega viðurkenningahátíð félagsins þar sem kynnt eru úrslit í kosningu besta íþróttafólks og þjálfara félagsins á árinu 2019. Auk þess fengu viðurkenningu 112 ungmenni sem tekið hafa þátt í verkefnum sérsambandanna KSÍ, HSÍ, KKÍ og KAÍ árinu 2019. Besta íþróttakona félagsins var kjörin körfuknattleikskonan Þóra Kristín Jónsdóttir, besti íþróttamaður handknattleiksmaðurinn…

  • Viðurkenningahátíð Hauka 2019

    Í hádeginu kl. 12:00 á Gamlársdag krýna Haukar besta íþróttafólk ársins 2019. Valin verða íþróttakona, íþróttakarl og þjálfari ársins. Tilnefndir eru 13 einstaklingar. Auk þess verða kölluð fram og heiðruð með viðurkenningu þeir einstaklingar sem valdir hafa verið í landsliðsverkefni sérsambanda Íslans það eru KSÍ, HSÍ, KKÍ og KAÍ, alls um 100 manns. Þær sem…