Fyrsti leikur á nýju ári

Það er loksins komið að fyrsta leik á nýju ári í handboltanum þegar að stelpurnar í meistaraflokki kvenna spila í Olísdeild kvenna. Leikurinn fer fram á morgun, laugardag, þegar að ÍBV kemur í heimsókn á Ásvelli kl. 16:00. Leikurinn er mjög mikilvægur í báráttunni um sæti í úrslitakeppni en með sigri styrkja stelpurnar stöðu sína í baráttunni um síðustu úrslitakeppnis sætin. Það má því búast við hörkuleik á Ásvöllum þegar að stelpurnar vilja byrja árið með stæl. Fjölmennum og áfram Haukar!