Oddný tekur við sem formaður meistaraflokksráðs kvenna

Oddný Sófusdóttir hefur tekið við sem formaður meistaraflokksráðs kvenna í knattspyrnu og tekur hún við af Halldóri Jóni Garðarssyni sem gegnt hefur því starfi síðustu 3 1/2 ár en hann tók við sem formaður knattspyrnudeildar Hauka um miðjan ágúst sl.

Stjórn knattspyrnudeildar fagnar komu Oddnýjar þar sem hún mun án efa styrkja starfið enn frekar en aðrir í ráðinu eru Helga Helgadóttir, yfirþjálfari, Jón Björn Skúlason, varaformaður knattspyrnudeildar, og Karl Guðmundsson, gjaldkeri knattspyrnudeildar.

Oddný starfar sem aðstoðar deildarstjóri og verkefnastjóri hjá Distica og er móðir tveggja stúlkna í 2. flokki kvenna og stúlku í 6. flokki.

Vertu velkomin í starfið Oddný!

Oddný Sófusdóttir