Bikarleikir framundan

Núna í vikunnu fara fram tveir bikarleikir hjá meistaraflokkum karla og kvenna. Strákarnir ríða á vaðið í kvöld, miðvikudagskvöld, þegar að Fjölnisstrákar koma í heimsókn á Ásvelli kl. 19:30. Það er mikið undir og því um að gera fyrir fólk að fjölmenna á Ásvelli í rauðu til að styðja strákana áfram í bikarnum. Minnum á hamborgaratilboðin þannig að hægt er að taka kvöldmatinn á Ásvöllum.

 

Stelpurnar leika einnig við Fjölni og er sá leikur á morgun, fimmtudag, kl. 20:30 í Dalhúsum. Það er einnig mikið undir hjá stelpunum því að sigurvegarinn í viðureignunum fá sæti í Final4. Það er því um að gera að láta sig ekki vanta á þessa hörkuleiki til að styðja Haukaliðin áfram í baráttunni og tryggja sætið í Final4. Áfram Haukar!