Fram mætir á Ásvelli

Það er loksins komið að fyrsta leik ársins hjá meistaraflokki karla þegar að þeir fá Fram í heimsókn þriðjudaginn 28. janúar kl. 19:30. Strákarnir töpuðu síðasta leiknum fyrir pásu og mæta því dýrvitlausir á móti sterku Framliði sem sótti í sig veðrið í síðustu leikjum fyrir pásu eftir brösulega byrjun. Það má því búast við hörkuleik á Ásvöllum sem enginn vill missa af. Fjölmennum og áfram Haukar!