Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Hauksigur fyrir norðan

    Í kvöld léku okkar menn gegn liði Akureyrar í KA-heimilinu. Þökk sé heimasíðu Akureyringa getum við skrifað litla og fallega grein um leikinn. Samkvæmt öruggum heimildum að norðan skoraði Sigurbergur fyrsta mark leiksins. Eftir það var leikurinn jafn og voru Akureyringar alltaf örlítið á undan en Gunnar Berg kom Haukum síðan yfir á 20. mínútu…

  • Dregið í bikarnum

    Nú rétt í þessu var dregið í SS bikarnum. Dregið var í þættinum Sportið sem sýndur er á RÚV á mánudagskvöldum. Strákarnir okkar í meistaraflokki mæta Val 2, Haukar U mæta Víkingi og Haukar 2 mæta Val 3. Haukar U fá heimaleik en Haukar og Haukar 2 fá útileik. Stelpurnar okkar sitja hjá. Leikið verður hjá…

  • Dregið í bikarnum í kvöld

    Í þættinum Sportið sem sýnt verður á RÚV í kvöld klukkan 22.20 verður dregið í 32 liða úrslit karla og 16 liða úrslit kvenna í SS bikarkeppninni. Við Haukamenn eigum að sjálfsögðu lið í pottinum og það fleiri en eitt. Stelpurnar okkar sitja hjá þar sem þær eru núverandi bikarmeistarar. Karlamegin eigum við hins vegar…

  • Haukar U töpuðu í Austurbergi

    Í kvöld hófst 1.deild karla í handbolta og hófu Haukar U tímabilið í Austurbergi gegn ÍR-ingum sem féllu úr Úrvalsdeildinni í fyrra. ÍR-ingar skoruðu fyrstu tvö mörkin í leiknum og gáfu þar með tóninn, Hauka liðið var alltaf nokkrum mörkum á eftir Breiðhyltingum. Þegar fór að líða á fyrri hálfleikinn jókst munurinn á liðunum og…

  • Aron: Fórum illa með dauðafærin

    Aron Kristjánsson var ágætlega sáttur með úrslitin í kvöld, 29 – 29 jafntefli gegn Frömurum á útivelli.„Miðað við síðustu mínúturnar í leiknum er ég ánægður með eitt stig, en miðað við gang leiksins þá gat sigurinn dottið hvoru megin sem er, þannig þetta eru eiginlega sanngjörn úrslit.“ Aron var ekki nægilega sáttur með varnarleikinn í…

  • Jafntefli í Safamýrinni

    Í kvöld léku okkar menn gegn Frömurum í Safamýrinni. Fyrir leikinn voru bæði lið með 4 stig eftir 2 leiki og því búist við hörkuleik. Það voru Framarar sem skoruðu fyrsta mark leiksins en jafnt var á öllum tölum í fyrri hálfleik, en Haukar komust yfir í fyrsta sinn í leiknum á 25.mínútu í stöðunni…

  • Strákarnir fara í Safamýrina

                                             Á morgun, fimmtudag, fara strákarnir í heimsókn í Framhúsið við Safamýri og leika þar gegn heimamönnum klukkan 20:00. Fyrir leikinn eru bæði liðin með 4 stig í 2. og 3. sæti á eftir Stjörnumönnum sem eru með 6 stig. Haukar og Fram eru búnir með tvo leiki en Stjarnan þrjá. Í…

  • Strákarnir sigruðu Eyjamenn

    Strákarnir spiluðu í dag gegn liði ÍBV. Ánægjulegt var hve margir mættu á völlinn og vonandi er þetta aðeins byrjunin á góðum vetri. Ekki spillti það heldur gleðinni hversu vel strákarnir okkar spiluðu og gjörsamlega rúlluðu yfir Eyjamenn. Í hálfleik höfðu þeir að vísu aðeins eins marks forystu, 13-12. Í síðari hálfleik gáfu strákarnir allt…