Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Eimskipsbikarinn

    Eimskip og HSÍ hafa skrifað undir samstarfssamning um að bikarkeppni HSÍ muni bera heitið Eimskipsbikarinn næstu þrjú árin. Samningurinn á við bikarkeppni karla og kvenna auk allra yngri flokka. Á sama tíma var dregið í 16 liða úrslit karla og 8 liða úrslit kvenna. Í karlaflokki eigum við Haukamenn tvö lið og í kvennaflokki eitt…

  • Bikardráttur

    Á morgun, þriðjudag, verður dregið í 16 liða úrslit karla og 8 liða úrslit kvenna í bikarkeppni HSÍ. Á sama tíma verður kynntur til sögunnar nýr samstarfsaðili bikarkeppninnar en síðustu ár hefur SS verið samstarfsaðili og keppnin borið nafið SS bikarinn. Nú verður breyting á og nýja nafnið verður kynnt á morgun. Við Haukamenn eigum…

  • Tveir leikir á miðvikudaginn

    Á miðvikudaginn leika meistaraflokkarnir okkar tvo leiki. Klukkan 18:15 fara stelpurnar okkar í heimsókn í Vodafone höll Valsmanna og leika þar gegn heimastelpum í Val í N1 deildinni. Stelpurnar í Val töpuðu sínum fyrsta leik sínum í vetur á sunnudaginn þegar þær töpuðu gegn Fram með einu marki og sitja þær í 3. sæti deildarinnar…

  • Stelpurnar töpuðu gegn Gróttu

    Í dag tóku stelpurnar okkar á móti Gróttu á Ásvöllum. Eitthvað hafa stelpurnar okkar ekki verið tilbúnar í verkefnið og töpuðu 32-34. Mikil barátta var í leiknum allan tímann og var munurinn aldrei mikill. Staðan í hálfleik var 15-18 Gróttu í vil en allan hálfleikinn hafði Grótta leitt með 1-2 mörkum. Markahæst í liði okkar…

  • Veisla á Ásvöllum

    Á laugardaginn verður nóg að gera á Ásvöllum. Þá fara fram tveir leikir og er annar þeirra landsleikur karla í handbolta. Klukkan 14:00 á laugardaginn tekur íslenska landsliðið í handbolta á móti landsliði Ungverja á Ásvöllum. Liðin leika á föstudaginn klukkan 20:00 í Laugardalshöll og verður þetta því annar æfingaleikur liðanna á jafnmörgum dögum. Veislan…

  • Beggi í landsliðið

    Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari karla, hefur ákveðið að kalla enn einn Haukamanninn inn í landsliðið. Beggi, Sigurbergur Sveinsson, hefur verið kallaður inn í hópinn fyrir landsleikina gegn Ungverjum um helgina. Það eru því fimm Haukamenn í landsliðinu en eins og áður hefur komið fram eru Andri Stefan, Ásgeir Örn, Vignir Svavars og Birkir Ívar allir í…

  • Ný glæsilega handboltasíða

    Ný glæsilega handboltasíða hefur verið opnuð. Slóðin er www.handbolti.is og eru ávallt nýjar fréttir þar inni, skemmtileg viðtöl og fullt af myndum frá leikjum og atburðum sem tengjast handbolta. Þeir menn sem standa að baki síðunni eiga hrós skilið fyrir flotta síða, frábæra umfjöllun og skemmilegar myndir frá leikjunum sem ekki einungis eru af leikjunum…

  • Strákarnir unnu Mosfellinga

    Í gær unnu strákarnir okkar lið UMFA á útivelli 30-24. Okkar menn skoruðu fyrsta markið en heimamenn voru fljótir að snúa blaðinu við og komust í 5-3 og síðar 8-6. Okkar menn náðu að jafna 8-8 og komust svo loks yfir í stöðunni 9-10. Staðan í hálfleik var 12-15. Okkar menn gáfu í í byrjun…

  • Fjórir Haukamenn í landsliðið

    Í dag tilkynnti Alfreð Gíslason landsliðshóp karla sem leikur gegn Ungverjum í tveimur æfingaleikjum í næstu viku. Í hópnum er einn núverandi leikmaður Hauka en samtals eru fjórir Haukamenn í hópnum. Það eru þeir Vignir Svavarsson, Ásgeir Örn Hallgrímsson og Vestmannaeyingurinn Birkir Ívar Guðmundsson. Landsliðshópurinn lítur svona út: Markverðir:Birkir Ívar Guðmundsson, Lübbecke – ÞýskalandBjörgvin Páll Gústavsson, FramHreiðar…