Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Stórleikur í bikarnum

    Í hádeginu í dag var dregið í 8 liða úrslit Eimskipsbikars karla. Við Haukamenn förum í stórleik þegar við heimsækjum Val í Vodafone höllina. Allir leikirnir:Afturelding 2 – AkureyriÞróttur Vogum – VíkingurValur – HaukarFram – Stjarnan Leikið verður dagana 2. og 3. desember.

  • Dregið í bikarnum í dag

    Í hádeginu í dag verður dregið í 8 liða úrslit Eimskipsbikars karla. Í pottinum erum við Haukamenn með eitt lið. Öll liðin sem eru í pottinum eru:Afturelding 2, Akureyri, Fram, Haukar, Stjarnan, Valur, Víkingur og Þróttur Vogum. VIð munum koma með inn á síðuna um leið og fréttir berast.

  • Jafntefli gegn Fram

    Í kvöld léku stelpurnar okkar gegn Fram í N1 deildinni. Leikurinn var spennandi frá upphafi og skiptust liðin á að hafa forystu allan leikinn. Staðan í hálfleik var 11-11. Í síðari hálfleik hélt spennan áfram og liðin héldu áfram að skiptast á að vera með forystu. Leikurinn var þó ekki mikið fyrir augað en samt…

  • Stelpurnar úr í bikarnum

    Það er ekki hægt að segja að handboltinn sem stelpurnar okkar buðu upp á í síðari hálfleik gegn Stjörnunni í dag hafi verið glæsilegur. Stelpurnar töpuðu leiknum 34-30 eftir að hafa verið undir 16-15 í hálfleik. Stelpurnar okkar byrjuðu vel. Þær skoruðu fyrsta markið og komust svo í 3-1. Leikurinn var mjög jafn og spennandi…

  • Jafntefli gegn Val

    Strákarnir okkar tóku á móti Valsmönnum á Ásvöllum í kvöld. Valsmenn skoruðu fyrsta markið en okkar menn komust yfir í stöðunni 4-3. Eftir það juku þeir forskotið og náðu mest 5 marka forskoti í fyrri hálfleik, 11-6. Staðan í hálfleik var 14-11 okkar mönnum í vil. Síðari hálfleikurinn var jafn og spennandi allan tímann. Valsmenn…

  • Myndir frá Hafnarfjarðarmóti 6.bekkinga

    Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá Hafnarfjarðarmóti 6.bekkinga í handbolta sem fram fór í Íþróttahúsinu við Strandgötu laugardaginn 10. nóvember. Greinilegt er á myndunum að mótið heppnaðist vel og allir voru ánægðir. Mótið var samvinnuverkefni Hauka, FH og HSÍ og tókst í flesta staði vel að sögn mótshaldara. Krakkarnir úr Setbergsskóla Strákarnir úr Lækjarskóla…

  • Hanna í liði fyrstu umferðar

    Í dag var tilkynnt lið 1.-8. umferðar N1 deildar kvenna. Í hópnum er ein Haukakona en það er Hanna Guðrún Stefánsdóttir. Hópurinn:Markmaður: Florentina Grecu; StjarnanLínumaður: Pavla Nevarilova; Fram (jafnfram besti leikmaður umferðanna)Vinstra horn: Dagný Skúladóttir; ValHægra horn: Hanna Guðrún Stefánsdóttir; HaukumVinstri skytta; Alina Petrache; StjarnanHægri skytta: Eva Barna; ValMiðjumaður: Rakel Dögg Bragadóttir; Stjarnan Þjálfari: Einar…

  • Afhending búninga

    Í þessari viku og næstu viku verða keppnisbúningar fyrir yngri flokka afhentir á Ásvöllum. Þeir verða einungis afhentir sé búið að greiða fyrir þá en greiða þarf 6.000 krónur. Hægt er að greiða á staðnum eða leggja inn á reikning unglingaráðs (reikn. 1101-26-6866, kt. 670281-0279) og þarf þá að koma með kvittun til staðfestingar. Afhendingatímar…