Viðtal við Díönu Guðjónsdóttur
Við tókum einnig Díönu á létt spjall og hér að neðan má sjá viðtal við hana.
Mér líður mjög vel hérna en væri til í að breyta sumu en gef upp seinna hvað það er. Þetta er allt í rétta átt.
Það eru alltaf breytingar með nýjum þjálfara en miðað við hvað þetta er reynslumikið lið þá er þetta ekki það sem við viljum. Við erum búnar að tapa 3 leikjum með 2 mörkum og einum leik með 1 marki. Þetta eru hlutir sem við ætlum að laga í næstu umferð.
Hvað við erum með alltof mikið af töpuðum boltum og síðan vil ég fá að sjá skytturnar mínar skjóta meira af 9m.
Nei í sjálfum sér ekki. Fram hefur gefið sér tíma að byggja upp og er að skila frábæru liði núna.
Nei það er langt frá því að þetta skili sér í kvennaboltan en hverjum er um þar að kenna, held ég að sjálf liðin þurfi að skoða sitt starf þar. Það er samt t.d. mjög gaman að sjá umgjörðina hjá Fram og hvað það eru margir sem mæta á leiki hjá þeim greinilega verið að gera rétt þar.
Það er mjög margt og hefur kannski umgjörðin á okkar heimaleikjum ekki verið til fyrirmyndar en sem betur fer mun það vonandi lagast núna með góðu fólki sem er komið inn í þetta hjá okkur.
Ég myndi byrja á að ráða inn markaðsfulltrúa til að koma á betri kynningu á handboltan. Síðan hef ég margar hugmyndir sem ekki eru gefnar upp hér.
Bara mjög vel. Leikir leggjast yfirleitt mjög vel í mig. Ef við mætum einbeittar og með rétt hugarfar í leikinn þá spyrjum við að leikslokum
Já ekki spurning
Á ekki vona á öðru
Já ég væri til í að sjá fleirri á leikjum hjá okkur því það er nokkuð ljóst að áhorfendur geta skipt sköpum á leikjum.
Takk fyrir mig
Við þökkum Díönu kærlega fyrir þetta og vonum að nú fari hlutirnir að ganga í rétta átt hjá okkur stelpum.
