Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Viðtal við Aron Kristjánsson

    Við tókum þjálfara meistaraflokkanna á létt spjall og spurðum nokkurra spurninga fyrir heimasíðuna. Hér kemur viðtal við Aron Kristjánsson þjálfara meistaraflokks karla. Jæja Aron, fyrsta spurningin hlýtur að vera einföld, hvernig er að vera kominn heim til að þjálfa Haukana?Það er bara nokkuð gott. Það hefur verið tekið vel á móti mér og liðið hefur…

  • Tveir stórleikir á tveimur dögum

    Á morgun, miðvikudag, og á fimmtudaginn spila meistaraflokkar karla og kvenna sin hvorn stórleikinn. Á morgun taka strákarnir okkar á móti Valsmönnum á Ásvöllum og á fimmtudaginn fara stelpurnar í heimsókn í Mýrina í Garðabæ og leika þar gegn Stjörnustelpum. Strákarnir taka á móti Valsmönnum á morgun klukkan 19:00 en Haukar og Valur eru eins og…

  • Stelpurnar í fjáröflun

    Eins og allir vita þá standa stelpurnar okkar í ströngu í N1 deildinni og Eimskipsbikarnum. En það þarf að gera ýmislegt annað til að allt gangi upp. Það kostar að sjálfsögðu sitt að halda úti liði í meistaraflokki og verða því meistaraflokksmenn, bæði karla og kvenna, að vinna fyrir sér í fjáröflun. Stelpurnar okkar voru…

  • Haukar í Afríku

    Í vikunni gáfu Hauka börnum í ABC barnaþorpinu í Kenýa góðan glaðning þegar börnunum var gefið Haukabolir. Meðfylgjandi eru myndir frá börnunum og sýnir að Haukar eru sýnilegir alls staðar, líka í Afríku.

  • Haukar – FH mfl. kv

    Það var ekki glæsilegur handbolti sem var spilaður á Ásvöllum í dag. FH stelpur komu í heimsókn og voru gæði leiksins ekki upp á marga fiska. Haukastelpurnar komust fljótlega í stöðuna 13-2 og staðan í hálfleik var 16-7 í hálfleik. Í síðari hálfleiknum skiptust liðin á að skora og endaði leikurinn með 10 marka sigri…

  • Haukar – FH

    Á morgun, laugardag, klukkan 18:00 fer fram leikur Hauka og FH í N1 deild kvenna á Ásvöllum. Fjölmennum á leikinn og styðjum stelpurnar okkar til sigurs. ÁFRAM HAUKAR!!

  • Láki og Valgeir bestu dómararnir

    Í gær var tilkynnt á blaðamannafundi lið fyrstu 7 umferða N1 deildarinnar auk þess sem bestu dómararnir voru valdir. Bestu dómarar umferðanna voru Þorlákur Kjartansson og Valgeir Ómarsson, en Láki er eins og margir vita sannur Haukamaður. Lið fyrstu 7 umferðanna:Markmaður: Björgvin Páll Gústavsson, FramVinstri hornamaður: Gunnar Ingi Jóhannsson, StjarnanHægri hornamaður: Goran Gusic, AkureyriLínumaður: Einar…

  • Beggi: Þurfti að sleppa matarklúbbnum!

    Sigurbergur Sveinsson starfsmaður í Fjarðarkaup var valinn í fyrsta sinn í íslenska A-landsliðið um miðjan október. Sigurbergur var nú ekki bara valinn í A-landsliðið af því hann er starfsmaður í Fjarðarkaup heldur er einnig leikmaður meistaraflokks Hauka. Sigurbergur er tvítugur að aldri og hefur spilað afar vel á þessu tímabili með Haukum ( Það hlýtur…

  • Tap og sigur í kvöld

    Stelpurnar okkar töpuðu í kvöld gegn Val í Vodafone höllinni og strákarnir okkar sigruðu HK á heimavelli. Stelpurnar okkar byrjuðu kvöldið á því að leika við Val. Leikurinn var jafn á öllum tölum og endaði svo með eins marks sigri Valsstelpna, 26-25, en staðan í hálfleik var jöfn 13-13. Markahæst í okkar liði var Nína…