Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Leikur hjá strákunum á morgun!

    Fös. 7.des.2007 19.15 Ásvellir Haukar – Afturelding Semsagt á morgun, koma Mosfellssveitungar í heimsókn til okkar á Ásvelli. Okkar menn eru sem stendur í efsta sæti og einungis búnir að tapa einum leik í deildinni, betur en öll önnur lið í deildinni! Mosfellssveitungar eða Afturelding eins og lið þeirra heitir eru aftur á móti einungis…

  • Strákarnir úr í bikarnum

    Strákarnir okkar fóru í heimsókn í Vodafone höll Valsmanna í dag og léku í 8 liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Það var Kári Kristján Kristjánsson sem skoraði fyrsta mark leiksins. Okkar menn byrjuðu leikinn mun betur og komust í stöðuna 7-10 þegar um 5 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Valsmenn gáfu þá í og voru komnir…

  • Hvernig er stemmingin fyrir leiknum ?

    Eins og við greindum frá í gær, þá er stórleikur í Eimskipsbikarnum á morgun, leikur Vals og Hauka í Vodafone-höllinni á Hlíðarenda klukkan 16:00. Við fengum nokkra leikmenn meistaraflokks til að segja okkurhvernig stemmingin væri fyrir leiknum hjá liðinu. Hér fyrir neðan eru svör leikmannana. Aron Kristjánsson, þjálfari liðsins; „Hún er mjög góð. Við tönkuðum…

  • Stórleikur í Eimskipsbikarnum

    Á sunnudag kl. 16:00 verður stórleikur í Eimskipsbikarnum, er okkar menn heimsækja Valsmenn í nýju íþróttahúsi þeirra á Hlíðarenda. Þetta verður í þriðja sinn sem þessi lið mætast í vetur. Í fyrstu umferð sigruðu Haukar – Val nokkuð örugglega í Vodafonehöllinni. Í níundu umferð kíkti síðan Valsarar við í Hafnarfjörðinn og náðu að krækja sér…

  • Sigur í stórleik

    Það var algjör stórleikur leikinn í Mýrinni í Garðabæ í kvöld er okkar menn heimsóttu Stjörnuna heim. Fyrir leikinn voru okkar menn efstir í deildinni með 17 stig en Stjarnan með 13 stig í 4. sæti en búnir að leika einum leik færra. Það voru heimamenn sem byrjuðu leikinn betur og skoruðu fyrstu tvö mörkin, okkar…

  • Stórleikur á morgun

    Á morgun, fimmtudag, fer fram stórleikur í Mýrinni í Garðabæ. Þá fara strákarnir okkar í heimsókn til Stjörnumanna. Leikurinn, sem er liður í N1 deildinni, hefst stundvíslega klukkan 20:00. Fyrir leikinn eru strákarnir okkar í toppsæti deildarinnar með 17 stig eftir 11 leiki, tveimur stigum á undan HK sem hefur leikið 10 leiki.Stjarnan er í 4….

  • Áframhald á afhendingu búninga

    Ákveðið hefur verið að í þessari viku verður framhald á afhendingu keppnisbúninga fyrir yngri flokka á Ásvöllum. Þeir verða einungis afhentir sé búið að greiða fyrir þá en greiða þarf 6.000 krónur. Hægt er að greiða á staðnum eða leggja inn á reikning unglingaráðs (reikn. 1101-26-6866, kt. 670281-0279) og þarf þá að koma með kvittun til staðfestingar….

  • Haukadagur á N1

                                                     N1, Haukar og HSÍ standa fyrir skemmtilegri uppákomu á N1 Lækjargötu, Hafnarfirði laugardaginn 24.nóvember frá kl 12-13.  Leikmenn meistaraflokks karla verða á staðnum, skotkeppni verður þar sem veglegir vinningar eru fyrir þá skotvissu og miðar verða gefnir á leik Hauka og Akureyri sem fram fer sama dag kl 17:00. Nú er um að…

  • Strákarnir enn á toppnum

    Strákarnir okkar sigruðu í kvöld lið Fram með 26 mörkum gegn 20 á Ásvöllum. Framarar byrjuðu mun betur og komust strax í góða forystu. Fram kost í stöðun 10-6 en okkar menn náðu að breyta stöðunni fyrir hálfleik í 12-10 sér í vil og var staðan þannig í hálfleik. Í síðari hálfleik héldu strákarnir okkar…

  • Allir á völlinn

    Á morgun fer fram sannkallaður stórleikur á Ásvöllum. Þá taka strákarnir okkar, sem eru í efsta sæti eftir frækinn sigur á ÍBV um helgina, á móti liðinu í 3. sæti, Fram. Okkar strákar eru í efsta sæti deildarinnar með 14 stig eftir 9 leiki en HK og Fram eru jöfn í 2. og 3. sæti…