Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Þrír dagar í fjörið

    Nú eru aðeins þrír dagar þar til Íslandsmótið í handbolta hefst. Þá leika stelpurnar okkar gegn liði Fram klukkan 20:00 í Framhúsinu. Á föstudaginn hefst svo Íslandsmót karla en strákarnir okkar fara þá í heimsókn í nýju Vodafone höllina að Hlíðarenda og leika gegn Íslandsmeisturum Vals. Fram að móti munum við birta hér á síðunni…

  • Æfingar komnar á fullt

    Nú eru æfingar yngri flokka komnar á fullt. Í síðustu viku voru krakkarnir sem æfðu í fyrra að tínast á æfingar en alltaf er nægt pláss á æfingum fyrir fleiri. Nú er rétti tíminn til að byrja í handboltanum. Á myndinni er leikmaður unglingaflokks kvenna á æfingu.

  • Laima Miliauskaite

    Stelpurnar okkar hafa fengið góðan liðstyrk en Laima Miliauskaite, Litháenskur markmaður sem leikið hefur með FH síðustu ár, hefur ákveðið að ganga til liðs við Hauka. Laima er mikill liðstyrkur fyrir liðið í komandi baráttu og bjóðum við hana hjartanlega velkomna í Haukafjölskylduna.

  • N1 deildin

    Í gær var skrifað undir samning við N1 um að úrvalsdeildir karla og kvenna í handbolta munu heita N1 deildirnar næstu árin. Guðmundur Ingvarsson segir á www.hsi.is að markmiðið sé að fá fleiri áhorfendur á leiki í deildunum og hafi HSÍ nú meira fé til kynningarmála sem þeir ætla að nýta vel.

  • Styttist í mót

    Það er orðið stutt í að Íslandsmót karla og kvenna hefjist. Stelpurnar okkar hefja leik eftir viku þegar þær heimsækja Framstelpur á fimmtudag klukkan 20:00 í Framhúsinu. Daginn eftir heimsækja svo strákarnir okkar Íslandsmeistara Vals á nýjan heimavöll þeirra, Vodafone höllina á Hlíðarenda. Liðin mættust einmitt í síðasta leik síðasta tímabils þegar Valsmenn tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn…

  • Haukar meistarar meistaranna

    Í kvöld lék meistaraflokkur kvenna gegn Stjörnunni í hinum árlega leik  meistarar meistararanna, en þá leika bikarmeistarar gegn Íslandsmeisturum síðasta árs. Leikurinn var háður í Garðabæ. Haukastelpurnar voru yfir frá því í stöðunni 2-3 og höfðu gott tak á Stjörnunni allan leikinn. Hin sprettharða Hanna Guðrún Stefánsdóttir var markahæst í liði Hauka. Leikurinn endaði með…

  • Okkar lið á Reykjavik Open

    Í dag hefja bæði U liðið og stelpurnar okkar leik á Reykjavik Open. Báðir flokkarnir leika sína fyrstu leiki undir stjórn nýrra þjálfara. Einar Jónsson er nýr þjálfari strákanna og Díana Guðjónsdóttir er ný þjálfari stelpnanna. Strákarnir í U liðinu hefja leik í Austurbergi klukkan 19:00 þegar þeir leika gegn HK 1. Klukkan 21:00 leika þeir svo…

  • Mót yngri flokka í vetur

    Í vetur taka 5. og 6.flokkar karla og kvenna þátt á fimm mótum. 7.flokkar karla og kvenna taka þátt á þremur mótum og 8.flokkarnir fara á eitt mót. Fyrsta mót 5.flokks karla verður haldið í Vestmannaeyjum helgina 12. – 14. október. Helgina 16.-18. nóvember verður svo haldið mót hjá 5.flokki karla hjá okkur Haukamönnum á…

  • Tveir leikmenn meiddir

    Í úrslitaleiknum á Ragnarsmótinu meiddust tveir af leikmönnum okkar. Það voru þeir Kári Kristján Kristjánsson, línumaður, og Gísli Guðmundsson, markmaður. Kári varð fyrir því óláni að brákast á fæti og verður frá keppni í 1-2 mánuði. Gísli tognaði á innanverðu liðbandi í hné og verður væntanlega frá keppni í um 2 vikur. Þetta þýðir að…

  • Önnur breyting á Reykjavík Open

    Það hefur verið gerð önnur breyting á leikjaniðurröðun á Reykjavík Open. FH hefur dregið liðið sitt úr keppni og verður því aðeins leikið á föstudaginn og laugardaginn. Leikir Haukastelpnanna eru eftirfarandi:Föstudagur:18:00    gegn Fylki21:00    gegn ValLaugardagur:10:00    gegn Fram12:00    gegn Stjörnunni