Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Strákarnir töpuðu gegn Stjörnunni

    Í gær spiluðu strákarnir okkar æfingaleik gegn Stjörnunni á Ásvöllum. Stjörnumenn byrjuðu betur og náðu strax 5 marka forskoti en okkar strákar náðu að jafna í 13-13. Stjörnumenn náðu aftur forskoti sem okkar menn náðu aldrei að jafna og endaði leikurinn með tveggja marka tapi okkar manna. Gísli Guðmundsson, nýr markmaður okkar Haukamanna, varði mjög…

  • Æfingaleikur á miðvikudag

    Á miðvikudaginn klukkan 18:30 verður æfingaleikur á Ásvöllum þegar strákarnir okkar taka á móti Stjörnunni. Við hvetjum fólk til að mæta á völlinn og kíkja á hvernig strákarnir okkar koma undan sumri. Íslandsmótið hjá strákunum hefst svo dagana 13. –  16. september.

  • Þjálfarar meistaraflokka vetrarins

    Miklar breytingar hafa átt sér stað í þjálfaramálum meistaraflokka karla og kvenna fyrir veturinn. Eins og flestir vita hefur Aron Kristjánsson tekið við þjálfun meistaraflokks karla og Díana Guðjónsdóttir hefur tekið við þjálfun meistaraflokks kvenna. Einar Jónsson verður þjálfari Hauka U. Aron Kristjánsson er Haukamaður í húð og hár. Aron lék með okkur Haukamönnum til…

  • Umferðatal DHL deildar kvenna

    Í júlí var, eins og hjá körlunum, dregið í töfluröð DHL deildar kvenna. Í ár leika 9 lið í deildinni, Akureyri, FH, Fram, Fylkir, Grótta, Haukar, HK, Stjarnan og Valur. Leikin verður þreföld umferð og situr alltaf eitt lið hjá í hverri umferð. Samtals verða því 27 umferðir en hvert lið leikur 24 leiki. Hér…

  • Umferðatal Íslandsmótsins

    Í júlí var dregið í töfluröð Íslandsmótsins. Sú breyting verður í vetur að leikið verður í þremur deildum á Íslandsmótinu og í efstu deild verða leiknar þreföld umferð, samtals 28 leikir á lið. Í fyrstu deild leika: Afturelding, Akureyri, Fram, Haukar, HK, ÍBV, Stjarnan og ValurÍ annari deild leika: FH, Fylkir, Grótta, Haukar U, Höttur,…

  • Dagskrá mfl. kk í ágúst

    Í ágúst mun meistaraflokkur karla leika nokkra æfingaleiki auk þess að taka þátt í mótum. Fimmtudaginn 9. ágúst klukkan 19:45 verður æfingaleikur á Ásvöllum gegn HK.Miðvikudaginn 15. ágúst verður æfingaleikur gegn Stjörnunni á Ásvöllum klukkan 18:30.Laugardaginn 18. ágúst verða 1 eða 2 æfingaleikir á Ásvöllum. Strákarnir taka svo þátt á Ragnarsmótinu á Selfossi dagana 22….

  • Námskeið fyrir eldri krakka

    Íþróttaskólinn býður næstkomandi tvær vikur upp á auka handboltanámskeið fyrir krakka á aldrinum 11-14 ára. Námskeiðið er ekki hugsað fyrir byrjendur heldur þá sem hafa verið að æfa að kappi. Fyrra námskeiðið hefst þriðjudaginn 7. ágúst og það seinna mánudaginn 13. ágúst. Námskeiðið fer fram á Ásvöllum frá klukkan 16:00-17:00. Vikan kostar 3000 krónur, en…

  • Leikmannahópur meistaraflokks karla

    Meistaraflokkur karla verður skipaður 17 leikmönnum í vetur. Í hópnum eru margir af leikmönnum síðasta vetrar auk þess sem 3 nýjir leikmenn koma til liðsins og 4 leikmenn sem léku með Haukum U í fyrra eru komnir í úrvalsdeildarhópinn. Markmenn:Gísli GuðmundssonMagnús SigmundssonAron Rafn Eðvarðsson Hornamenn:Jón Karl BjörnssonFreyr BrynjarssonÞröstur ÞráinssonKristján Örn Arnarson Skyttur:Gunnar Berg ViktorssonSigurbergur SveinssonÞórður Rafn…