Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Hanna Guðrún í landsliðið

    Hanna Guðrún Stefánsdóttir hefur verið valin í landsliðshóp sem mun æfa 7. maí til 16. júní. Meðal verkefna hópsins eru vináttuleikir við Þjóðverja og Hollendinga. Guðbjörg okkar Guðmannsdóttir, sem lék með okkur í fyrra en leikur nú með Fredrikshavn í Danmörku, er einnig í hópnum.

  • Fjölmennum á leikinn í kvöld

    Í kvöld leika stelpurnar okkar gegn Stjörnunni í deildarbikar kvenna. Stelpurnar töpuðu fyrsta undanúrslitaleiknum á þriðjudaginn og því mikið í húfi. Stelpurnar verða að sigra í kvöld til að eiga möguleika á að komast í úrslitaleiki deildarbikarsins 2007, þar sem við að sjálfsögðu viljum vera. Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 19:30 og hvetjum við fólk til að…

  • Skelfilegur leikur hjá stelpunum

    Stelpurnar okkar fóru í kvöld í heimsókn í Garðabæinn og léku þar gegn Stjörnunni í fyrsta undanúrslitaleik deildarbikarsins. Stelpurnar okkar mættu í orðsins fyllstu ekki í leikinn andlega, aðeins líkamlega. Í hálfleik var Stjarnan komin með 10 marka forskot, 21-11, og þegar leiknum lauk var munurinn 15 mörk, 40-25. Það vekur athygli allra hversu mikið…

  • Deildarbikarinn hjá stelpunum

    Á morgun, þriðjudag, hefst deildarbikar kvenna. Þá fara stelpurnar okkar í heimsókn í Ásgarðinn og leika á móti Íslandsmeisturum Stjörnunnar. Leikurinn hefst klukkan 19:30. Annar leikur liðanna verður svo á fimmtudaginn á Ásvöllum og hefst hann einnig klukkan 19:30. Ef til oddaleikjar kemur verður hann leikinn í Ásgarði klukkan 16:10 á laugardaginn. Fjölmennum á leikina…

  • Páll Ólafsson

    Páll Ólafsson kom til okkar Haukamanna haustið 2001 þegar hann var aðstoðarþjálfari hjá Viggó Sigurðssyni en Viggó þjálfaði eins og við öll vitum meistaraflokk karla. Palli hafði verið þjálfari hjá HK árin áður en Palli hafði þar á undan verið aðstoðarþjálfari Sigurðar Gunnarsson þegar hann var þjálfari meistaraflokks karla hjá okkur Haukamönnum og meðal annars…

  • Palli kvaddi með tapi

    Síðasti leikur strákanna í vetur fór fram í dag þegar þeir tóku á móti Val sem átti möguleika á því að verða Íslandsmeistari, ef þeir myndu sigra. Valsmenn byrjuðu betur og náðu strax forskoti 2-3 mörk. Staðan í hálfleik var 13-16 Val í vil. Í síðari hálfleik byrjuðu Valsmenn á því að auka forskotið en…

  • Unglingaflokkur karla í úrslit

    Í gær léku 4. flokkur kvenna A lið og unglingaflokkur karla í undanúrslitum Íslandsmótsins. Á föstudaginn varð það ljóst að B lið 4.flokks kvenna leikur um 3. sæti Íslandsmótsins klukkan 10:00 í Austurbergi í dag. A liðið tapaði sínum leik í gær og leikur því einnig um 3. sætið og hefst leikurinn þeirra klukkan 12:40 einnig í…