Fjölmennum á leikinn í kvöld

Í kvöld leika stelpurnar okkar gegn Stjörnunni í deildarbikar kvenna. Stelpurnar töpuðu fyrsta undanúrslitaleiknum á þriðjudaginn og því mikið í húfi. Stelpurnar verða að sigra í kvöld til að eiga möguleika á að komast í úrslitaleiki deildarbikarsins 2007, þar sem við að sjálfsögðu viljum vera.

Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 19:30 og hvetjum við fólk til að mæta tímanlega, hittast, spjalla og spá í spilin fyrir leik.

Fjölmennum á leikinn og hvetjum stelpurnar okkar til sigurs því við viljum að sjálfsögðu ekki að tímabilinu ljúki hjá okkar fólki í kvöld!!

ÁFRAM HAUKAR!!