Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Góður dagur á Ásvöllum

    Í dag voru tveir leikir á Ásvöllum. Fyrst tóku stelpurnar okkar á móti Val og síðan strákarnir okkar á móti Stjörnunni. Báðir leikirnir voru mjög mikilvægir, stelpurnar eru í baráttu við Val um 3. sætið og strákarnir í fallbaráttu. Stelpurnar byrjuðu mun betur í sínum leik. Þær komust í 7-4 og 13-7. Staðan í hálfleik…

  • Afmælisfundur Hauka

    Fimmtudaginn 12. apríl verður Knattspyrnufélagið Haukar 76 ára. Í tilefni af deginum verður haldinn afmælisfundur Hauka klukkan 20:00 á Ásvöllum. Á fundinum mun Þórdís Gísladóttir, íþróttafræðingur, flytja erindi auk Péturs Vilbergs Guðnasonar, Ingvars S. Jónssonar og Lúðvíks Geirssonar. Boðið verður upp á afmæliskaffi. Fundarstjóri verður Hallgrímur Jónasson. Fundurinn er opinn öllum Haukamönnum á meðan húsrúm leyfir….

  • Enn eitt tapið

    Strákarnir töpuðu í hörkuleik gegn Fylki í kvöld. Strákarnir okkar byrjuðu mun betur, komust þremur mörkum yfir en þá kom slæmur kafli og Fylkir jafnaði. Haukastrákarnir gáfu svo í aftur og náðu forystu aftur, en Fylkismenn jöfnuðu. Svona gekk leikurinn þar til Fylkismenn komust yfir undir lok fyrri hálfleiks. Staðan í hálfleik var 13-12 Fylki…

  • Sunnudagurinn 1. apríl

    Á sunnudaginn, 1. apríl, spila strákarnir í meistaraflokki afar mikilvægan leik gegn Fylki í Árbænum klukkan 18:00. Við Haukamenn ætlum að búa til stemningu á vellinum og styðja okkar stráka til sigurs því eins og við öll vitum skiptir þessi leikur afar miklu máli fyrir okkur. Við hittumst á Ásvöllum klukkan 16:00. Þar verður boðið…

  • Viggó aðstoðar

    Viggó Sigurðsson verður Palla til aðstoðar á lokasprettinum hjá mfl.karla.  Við fögnum því innilega hve Viggó brást skjótt við.   Eins og menn vita hefur gengi mfl.karla ekki verið sem skildi í vetur, en með samstilltu átaki er hægt að snúa því við.  ÁFRAM  HAUKAR

  • Þrír í U-21 árs landsliðið

    Heimir Ríkharðsson, landsliðsþjálfari U-21 árs landsliðsins, hefur valið 16 manna hóp sem fer til Spánar yfir páskana og leikur í undankeppni HM. Liðið leikur gegn Austurríki, Spáni og Sviss. Í liðinu eru þrír Haukastrákar. Það eru markverðirnir Björn Ingi Friðþjófsson og Björn Viðar Björnsson og skyttan Sigurbergur Sveinsson. Þeir eru allir í 2.flokki og leika með meistaraflokksliðinu.

  • Strákarnir töpuðu líka

    Þá er síðari leik dagsins lokið. Strákarnir töpuðu fyrir Akureyringum og eru enn í slæmum málum í deildinni. Strákarnir voru yfir allan leikinn eða þar til undir lok leiksins að Akureyringar loksins komust yfir og sigruðu að lokum 26-27. Markahæstur hjá strákunum var Guðmundur Pedersen með 8 mörk og hjá Akureyringum var það Goran Gucis með 6…

  • Stelpurnar töpuðu

    Nú er fyrri leik dagsins lokið. Stelpurnar spiluðu núna rétt áðan gegn Stjörnunni. Leikurinn var jafn nánast allan leikinn eða þar til í stöðunni 20-20. Þá gáfu Stjörnustelpur í og komust í fjögurra marka forystu, 24-20, og eftir það áttu stelpurnar okkar aldrei séns. Staðan í hálfleik var 12-13 Stjörnunni í vil og lokatölur 26-31….