Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Bikarinn nálgast

    Nú eru örfáar klukkustundir þar til bikarúrslitin hefjast. Við Haukamenn erum farnir að undirbúa okkur á fullu. Allt er klárt fyrir leikinn og því aðeins eftir að undirbúa sig andlega og líkamlega. Við ætlum að hittast eins og allir vita á Ásvöllum klukkan 10:30 í fyrramálið og hita okkur upp, mála okkur í framan, æfa…

  • Miðasala og miðaverð

    Miðaverð á bikarúrslitaleikinn er 1.000 krónur fyrir fullorðna (16 ára og eldri) og 500 krónur fyrir 15 ára og yngri. Miðasala verður á Ásvöllum frá 10:30 til 12:30 á laugardaginn. Miðasala verður svo inn í Laugardalshöll fyrir leikinn.

  • Bikarpunktar

    Hér eru nokkrir punktar varðandi bikarúrslitaleikinn á laugardaginn. HAUKAR – GRÓTTASS – BIKAR KVENNALAUGARDALSHÖLLLAUGARDAGINN 10. MARSKLUKKAN 13:30DAGSKRÁ Á ÁSVÖLLUM FRÁ KL. 10:30RÚTUFERÐIR FRÁ ÁSVÖLLUM KL. 12:30 Haukar hafa átt lið í úrslitum karla og/eða kvenna í 5 skipti á síðustu 6 árum. Þetta eru 6 lið í úrslitum. Grótta hefur átt lið í úrslitum karla og/eða kvenna…

  • Sigur gegn Akureyri

    Stelpurnar okkar unnu í kvöld lið Akureyrar í leik á Ásvöllum. Lokatölur urðu 27-22. Okkar stelpur höfðu góða forystu allan leikinn og var sigurinn því aldrei í hættu.Allar stelpurnar fengu að spila og stóðu sig vel. Nú er það bara bikarúrslitin á laugardaginn. Áfram stelpur!!

  • Haukastelpur í Höllinni

    Á laugardaginn, 10.mars, spila stelpurnar okkar til bikarúrslita gegn Gróttu í Laugardalshöll. Leikurinn hefst klukkan 13:30 og að sjálfsögðu ætlum við Haukamenn að fjölmenna í Höllina og styðja okkar stelpur til sigurs. Dagskráin hefst klukkan 10:30 á Ásvöllum. Þar verður boðið upp á andlitsmálun og annað til að hita upp fyrir átökin inn í Höll….

  • Nóg að gera hjá stelpunum

    Það er nóg að gera hjá stelpunum þessa dagana. Á morgun, miðvikudag, mæta þær Akureyri klukkan 19:00 á Ásvöllum. Á laugardaginn er svo stærsti leikur ársins þegar stelpurnar okkar leika gegn Gróttu í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöll. Sá leikur hefst klukkan 13:30. Mætum á leikinn á morgun og hitum okkur upp fyrir bikarslaginn á laugardaginn. Mætum…

  • Andri Stefan

    Andri Stefan hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning. Hann mun því spila fyrir Hauka að minnsta kosti til ársins 2009. Þetta eru miklar gleðifregnir fyrir okkur Haukamenn og Andra.