Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Enn eitt tapið

    Strákarnir okkar spiluðu í Austurbergi gegn ÍR í dag. Það virtist sem strákarnir okkar hafi hreinlega ekki mætt í fyrri hálfleik andlega en ÍR ingar hreinlega yfirspiluðu þá. ÍR ingar voru komnir með 8 marka forystu eftir 20 mínútna leik og náðu svo 10 marka forystu, 16-6. Staðan í hálfleik var 16-9. Í síðari hálfleik…

  • Hanna Guðrún í landsliðið

    Júlíus Jónasson, landsliðsþjálfari, kvenna hefur valið landsliðshóp sem tekur þátt á æfingamóti dagana 1. – 3. mars. Liðið mætir Tékklandi 1. mars, Slóvakíu 2. mars og Austurríki 3. mars. Hanna Guðrún Stefánsdóttir, Haukakona, var valin í landsliðið. Markmenn:   Berglind Hansdóttir SK Arhus Íris Björk Símonardóttir Grótta     Aðrir leikmenn:   Anna Úrsúla Guðmundsdóttir Grótta Arna Sif Pálsdóttir HK…

  • Strákarnir úr í bikarnum

    Strákarnir okkar léku gegn Fram í undanúrslitaleik SS bikarsins í kvöld. Strákarnir okkar byrjuðu betur og komust í 5-3, 9-6 og 12-7. Þá tóku Framarar kipp og náðu að minnka muninn í 12-11 og jafna svo 13-13. Framarar voru svo komnir yfir í hálfleik, 14-15. Í síðari hálfleik voru Framarar skrefinu á undan allan tímann….

  • Stelpurnar í Höllina

    Stelpurnar komust í kvöld í úrslit SS bikarsins eftir frábæran sigur á Val, 25-18. Þessar tölur gefa hins vega alls ekki neina mynd af leiknum. Haukastelpur skoruðu fyrstu 3 mörkin. Þær komust svo í 8-2, 13-2 og loks 14-3 í hálfleik. Hreint ótrúlegt að efsta lið deildarinnar skuli skora þrjú mörk í fyrri hálfleik í…

  • Bikarveisla á Ásvöllum

    Við minnum á bikarveisluna á Ásvöllum í kvöld. Hún hefst klukkan 19:00 þegar stelpurnar taka á móti Val og heldur svo áfram klukkan 21:00 þegar strákarnir taka á móti Fram. Báðir leikirnir eru í undanúrslitum. Mætum á Ásvelli og hvetjum okkar fólk til sigurs því við viljum að sjálfsögðu komast í Höllina. ÁFRAM HAUKAR!!

  • Aron Kristjánsson

    Handknattleiksdeild Hauka og Aron Kristjánsson hafa gengið frá samningi til næstu þriggja ára um að Aron þjálfi karlalið Hauka, auk þess mun Aron gegna stöðu framkvæmdastjóra fyrir deildina. Aron mun hefja störf strax að loknu yfirstandandi keppnistímabili og hefur þegar hafið mótun framtíðarliðs Haukanna.   Páll Ólafsson lætur af störfum sem þjálfari í lok yfirstandandi…

  • Veisla á sunnudaginn

    Á sunnudag, 18. febrúar, er langur dagur hjá okkur Haukafólki. Þá verða leiknir þrír leikir á Ásvöllum. Veislan byrjar klukkan 14:00 þegar U liðið tekur á móti ÍBV í 1. deild karla. Klukkan 16:00 leikur svo meistaraflokkur karla gegn HK og stelpurnar enda svo daginn klukkan 18:00 með því að leika gegn Gróttu. Fjölmennum á Ásvelli…