Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Handboltaveisla á Ásvöllum

    Á laugardaginn verður sannkölluð handboltaveisla á Ásvöllum. Þá verða tveir leikir, sem báðir verða sýndir í sjónvarpinu. Fyrst mæta stelpurnar liði Stjörnunnar klukkan 14:15 og síðan mæta strákarnir okkar liði Akureyrar klukkan 16:15. Báðir leikirnir eru mjög mikilvægir fyrir bæði liðin okkar og er stuðningur áhorfenda mikilvægur sem aldrei fyrr. Stelpurnar okkar eru í 4. sæti eins…

  • Þrír Haukamenn í landsliðið

    Þrír Haukamenn hafa verið valdir í landslið Íslands sem fer til Frakklands í æfingaferð um páskana. Auk þess að dvelja í æfingabúðum spilar landsliðið á æfingamóti 6.-8. apríl. Leikmennirnir eru Andri Stefan, Ásgeir Örn Hallgrímsson (Lemgo) og Vignir Svavarsson (Skjern). Til gamans má geta að þessir þrír leikmenn eru ekki aðeins fyrrverandi leikmenn Hauka heldur…

  • Tap í Hafnarfjarðarslagnum

    Strákarnir í U liðinu léku í kvöld gegn FH í 1. deildinni. Strákarnir okkar spiluðu mun betur en FHingarnar og höfðu forystu mest allan leikinn. Strákarnir leiddu með 1-3 mörkum þar til í stöðunni 20-20. Þá voru innan við 10 mínútur eftir af leiknum og hrundi spilamennska okkar stráka gjörsamlega. Síðasta kafla leiksins töpuðu þeir…

  • Stelpurnar sigruðu Fram

    Stelpurnar okkar léku gegn Fram á Ásvöllum í dag, rétt eftir að strákarnir töpuðu gegn Fram í Safamýrinni. Stelpurnar höfðu því harma að hefna fyrir strákana og vildu allir Haukamenn að sjálfsögðu sjá sigur í þessum leik. Framstelpur voru alltaf skrefinu á undan og leiddu með einu til tveimur mörkum þar til í stöðunni 10-10….

  • Strákarnir töpuðu gegn Fram

    Strákarnir okkar töpuðu í dag fyrir liði Fram 24-22. Strákarnir okkar byrjuðu mjög illa og komust Framarar í 8-3. Strákarnir okkar náðu að jafna 10-10 en þá komu þrjú mörk Framarar og staðan 13-10. Haukamenn komust svo yfir fljótlega eftir hálfleik og voru með forystu þar til tæpar 10 mínútur voru eftir. Þá komust Framarar…

  • U liðið tapaði gegn ÍBV

    U liðið tapaði í kvöld á móti ÍBV í leik á Ásvöllum. Leikurinn var aldrei spennandi og höfðu Eyjamenn forystu frá því í stöðunni 0-1. Staðan í hálfleik var 9-16 og í lok leiksins 22-32. Bestu menn vallarins voru ritari og tímavörður leiksins, að mati þeirra sjálfra.