Dregið í bikarnum í kvöld
Í þættinum Sportið sem sýnt verður á RÚV í kvöld klukkan 22.20 verður dregið í 32 liða úrslit karla og 16 liða úrslit kvenna í SS bikarkeppninni. Við Haukamenn eigum að sjálfsögðu lið í pottinum og það fleiri en eitt.
Stelpurnar okkar sitja hjá þar sem þær eru núverandi bikarmeistarar. Karlamegin eigum við hins vegar þrjú lið, Haukar, Haukar U og Haukar 2. Haukar er liðið sem leikur í N1 deildinni, Haukar U er U liðið okkar sem leikur í 1. deildinni og svo er Haukar 2 liðið okkar í utandeildinni þar sem margir af stórstjörnum síns tíma leika saman. Liðið hefur oft gengið undir nafninu "bumburnar".
Hvetjum alla til að horfa á Sportið í kvöld og fylgjast með drættinum.
