Myndir: Haukar-FH
Dagur Brynjólfsson var á Ásvöllum í gær og myndaði sigur Hauka. Til að sjá myndasafn hans frá því í gær smellið hér. Mynd: Það var aldrei spurning hver myndi vinna í gær – Dagur Brynjólfsson
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Dagur Brynjólfsson var á Ásvöllum í gær og myndaði sigur Hauka. Til að sjá myndasafn hans frá því í gær smellið hér. Mynd: Það var aldrei spurning hver myndi vinna í gær – Dagur Brynjólfsson
Hér verður stórleik Hauka og FH í beinni textalýsingu. Ýtið á „meira“ til að sjá textalýsinguna, minnum fólk á að „refresha“ svo til að sjá nýjustu tíðindin í leiknum. 60:00: Leiknum er lokið en Haukamaðurinn í FHbúningum skoraði lokamarkið, Jónatan Ingi Jónsson. 34-22. 59:00: Sigursteinn Arndal skorar, Heimir Óli svarar á móti á línunni, 34-21….
Leikurinn sem allir Hafnfirðingar og þó víða væri leitað hafa beðið eftir er í kvöld, Haukar – FH í N1-deild karla hefst klukkan 19:30 og fer hann fram í Íþróttamiðstöð Hauka, Ásvöllum. Forsala á leikinn hófst í gær og er enn í fullum gangi en hægt að er að kaupa miða á Ásvöllum en miðaverð…
Það styttist í stórleik N1-deildar karla, Hafnarfjarðarslaginn sem fram fer á fimmtudaginn þegar Haukar taka á móti FH á Ásvöllum en leikurinn hefst klukkan 19:30. Forsala hefst á Ásvöllum á morgun, miðvikudag en miðaverð er 1000 kr. fyrir 16 ára og eldri en frítt er fyrir yngri en 16 ára. Forsala verður einnig í Flensborgarskólanum…
Á fimmtudaginn næstkomandi 5.febrúar, taka Haukar, topplið N1-deildar karla á móti liðinu í 3.-4. sæti deildarinnar, FH í sannkölluðum stórleik að Ásvöllum. Leikurinn hefst klukkan 19:30 en húsið opnar klukkutíma fyrr eða klukkan 18:30. Óhætt er að fullyrða að leikurinn muni bjóða upp á allt það besta í íslenskum handknattleik: hraða, spennu og dramatík. Miðasala…
Í kvöld klukkan 18:30 munu Haukastelpur taka á móti Gróttustelpum í N1 deild kvenna. Fyrir leikinn eru Haukastelpur í 2. sæti deildarinnar og Grótta í því sjöunda. Fyrirfram má því búast við Haukasigri en aldrei má afskrifa Gróttustelpur sem stóðu svo sannarlega í Haukastelpum í fyrsta leik liðanna á Ásvöllum í haust. Liðin hafa tvisvar…
Í kvöld heimsóttu Haukamenn leikmenn Fram í toppslag N1 deildar karla. Fyrir leikinn voru liðin jöfn í tveimur efstu sætum deildarinnar með 16 stig en Fram var ofar þar sem liðið vann fyrri leik liðanna á Ásvöllum, 27 – 20. Leikurinn í kvöld var algjör andstæða þess leiks en Haukar höfðu yfirhöndina frá fyrstu mínútu…
Það verður sannkallaður stórleikur í Safamýrinni á morgun, þegar efstu tvö lið N1-deildar karla, Fram og Haukar mætast. Bæði lið eru jöfn á stigum með 16 stig, Haukar hafa sigrað átta leiki en tapað fjórum. Framarar hafa hinsvegar sigrað sjö leiki, gert tvö jafntefli og tapað tveimur. Stórleikurinn hefst klukkan 19:30 en á sama tíma verða þrír…