Haukar – FH í beinni

Haukar

Hér verður stórleik Hauka og FH í beinni textalýsingu. Ýtið á „meira“ til að sjá textalýsinguna, minnum fólk á að „refresha“ svo til að sjá nýjustu tíðindin í leiknum.

 

60:00: Leiknum er lokið en Haukamaðurinn í FHbúningum skoraði lokamarkið, Jónatan Ingi Jónsson. 34-22. 

59:00: Sigursteinn Arndal skorar, Heimir Óli svarar á móti á línunni, 34-21.

58:00: Arnar Jón skorar , 33-20, Gísli ver frá Sigursteini Arndal en Arnar Jón skýtur í stöng, FH í sókn

57:00: Jónatan Jónsson klikkar af línunni en þetta er fyrsta skotið sem hann klikkar eftir að hann gekk til liðs við FH. 

56:00: Sigursteinn Arndal skorar úr víti, og Heimir Óli rekinn útaf og FH í sókn. 12 makamunur, 32-20

55:00: Elías Már skorar enn og aftur úr hraðarupphlaupi og núna fara FHingar í röðum út.. þvílík skemmtun! 

53:00: Gísli Guðmundsson ver frá Erni Inga og Elías Már skorar úr hraðarupphlaupi. 

52:00: Arnar Jón Agnarsson skorar fyrsta mark sitt í leiknum með þrumufleyg. Sigursteinn Arndal með skot framhjá og Freyr Brynjarsson skorar úr hraðarupphlaupi. 

51:00: Haukar missa boltann og FH fær víti, Gísli Guðmundsson á móti Sigursteini Arndal og Sigursteinn klobbar Gísla. 

50:00: Freyr Brynjarsson skorar eftir að hafa tekið varnarmann FH á en Sigursteinn Arndal, 28-18 

48:00: Heimir Óli var rekinn útaf og Örn Ingi skorar fyrir FH, 27-17. 

47:00:  Jónatan Ingi skorar af línunni fyrir FH, 26-16. Jónatani er svo vikið af velli í næstu vörn eftir að hann hafi rifið í hendina á Elíasi Má. Sigurbergur skorar svo með þrumuskoti.

46:00: Gunnar Berg skorar, og FHingar eru farnir að yfirgefa húsið. FH taka leikhlé. 

45:00: Ásbjörn Friðrikson sendi boltann í innkast og Heimir Óli skorar af línunni, áður hafði Andri Stefan skorar, Tíumarka munur, 25-15 

44:00: Andri Stefan gerir slíkt hið sama og skorar framhjá Magnúsi sem er kominn í markið hjá FH. Guðmundur Pedersen skorar svo stöngin inn úr vinstra horninu. 23-15. 

42:00: Haukar vinna boltann í vörninni og Elías Már skorar úr hraðarupphlaupi. En Örn Ingi fintar sig léttilega framhjá Einar Erni. 22-14 

40:00: Hermann gefur boltann beint í fangið á Haukamanni og Haukar fara því í sókn. En Einar Örn skýtur langt framhjá úr horninu, staðan er enn 21-13. 

39:00: Bjarni Fritzson með sendingu í innkast svo er hann rekinn útaf fyrir peysutog.  En Kári Kristján klikkar svo af línunni.

38:00: Kári skorar af línunni, Bjarni skorar svo úr skyttunni en Sigurbergur svarar á móti, 21-13. 

36:00: Skorar úr mjög þröngu færi í horninu en hann snéri boltanum framhjá Hilmari. Guðmundur skorar svo úr víti, 19-12.  

35:00: Kári Kristján skorar fyrsta mark sitt i leiknum, Birkir ver svo í tvígang en dæmt víti. Þar sem Guðmundur Pedersen skorar, 18-11. 

33:00:  Sigurbergur klobbar Hilmar Þór í markinu hjá FH. En Örn Ingi skorar eftir að hafa komist í gegnum vörn Hauka, 17-10

32:00: Andri Stefan skorar þegar Haukar eru einum færri og svo klikkar FH, Haukar í sókn og Haukar orðnir sjö. 

31:00:  Freyr Brynjarsson rekinn útaf eftir 30 sekúndur, En Birkir ver frá Guðmundi Pedersen.

Nú fer seinni hálfleikurinn að hefjast, FHingar munu byrja með boltann. 

30:00: Það eru kominn hálfleikur á Ásvöllum og eru Haukar yfir 15-9 . Hjá Haukum er Sigurbergur markahæstur með 6 mörk. Hjá FH er Hjörtur með 4 mörk. 

28:00: Hjörtur Hinriksson skorar úr hægri skyttunni. Elías klikkar en hann vildi fá víti, FH í sókn. 

27:35: Birkir Ívar greip boltann frá Ásbirni en hann átti misslukkaða sendingu fram og FH í sókn. 

27:00: Sigursteinn Arndal rekinn útaf og Sigurbergur skorar úr víti, 15-8. 

26:00: Freyr með skot yfir en dæmd lína á Guðmund Pedersen eftir að hann ætlaði að fiska víti.  

25:00: Haukar missa boltan í sókninni en Guðmundur Pedersen skýtur framhjá úr horninu. FH taka Sigurberg úr umferð meðan Haukar eru manni færri. 

24:00: Arnar Pétursson rekinn útaf, en Birkir ver frá Hirti í horninu 

23:00: Eftir tveggja mínúnta sókn skorar Hjörtur . Sigurbergur skorar svo á móti, 14-8 

21:00: Eftir að Sigurbergur og Andri Stefan hefðu skotið í stöngina kláraði Freyr Brynjarsson sóknina með því að hausa Hilmar í markinu, 13-7. 

20:00: Hjörtur Hinriks. skorar af línunni, en Andri Stefan skorar framhjá Hilmari Þór sem var að koma í markið. Guðmundur Pedersen vippar svo í stöngina. 12-7 

19:00: Sigurbergur skorar með undirhandarskoti, 11-6 

18:30: Magnús Sigmundsson ver frá Einari Erni úr víti, annað vítið sem Haukar klikka í leiknum. Vörnin ver svo frá Bjarna Fritz. . 

17:00: Bjarni Fritzson skorar úr „sirkus“ marki, 10-6 

16:00: FH missa enn og aftur boltann í sókninni og nú skorar Elías Már Halldórsson úr hraðarupphlaupi, staðan er 10-5 og FH taka leikhlé. 

15:00: Sigurbergur Sveinsson skorar úr skyttunni, FH missa boltann og Freyr Brynjarsson skorar úr hraðarupphlaupi. 9-5. 

14:00: Haukar áttu mislukkaða línusendingu og Hjörtur Hinriksson skorar úr hraðarupphlaupi. 7-5. 

13:00: FH missa boltann og Haukar fara í sókn, En Andri Stefan skýtur í stöng , Örn Ingi stekkur upp í vinstri skyttunni og skorar, 7-4 

11:00: Bjarni Fritzson klikkaði víti en Elías Már klikkar einnig. 

09:30: Birkir Ívar ver og Elías Már skorar úr hraðarupphlaupi. 7-3

08:00:  Sigurbergur skorar eftir að vörn Hauka hafi varið boltann frá Fhingum, áður hafi Freyr Brynjars. skorað, 6-3.

07:00: Sigurbergur klikkar víti og Bjarni Fritz. skorar úr hraðarupphlaupi. 

06:26: Örn Ingi skorar eftir að boltinn kom fyrst í vörnina. 4-2 

06:00: Gunnar Berg fær tvær mínútur 

05:00: Elías Már skorar úr skyttunni og Birkir ver, og Elías fer í hraðarupphlaup og skorar. 4-1 

04:00:  Ásbjörn Friðriksson skorar fyrsta mark FH

03:22: Freyr skorar úr hraðarupphlaupi, 2-0 

02:00: Sigurbergur skorar fyrsta mark leiksins úr víti.

Leikurinn er hafinn og Haukar byrja með boltann. 

19:32: Smávegis vesen hérna, en búið er að kynna inn liðin og leikurinn fer senn að hefast, húsið er gott sem fullt!

 19:12: Það er  greinilegt að Aron Pálmarsson og Ólafur Guðmundsson verða ekki með í kvöld en þeir báðir hafa tillt sér í stúkuna hjá FHinugnum sem er komin langleiðina á að fyllast en tölvert er um laus sæti Haukamegin.

19:05: Vekur athygli að leikmenn FH eru fjórtán að hita upp og en engan Aron Pálmarsson né Ólaf Guðmundsson er að sjá í þeim hóp.

19:00: Hálftími í leik og bæði lið byrjuð að hita upp og gíra sig upp í leikinn. 

18:55: Leikur Hauka og FH í N1-deild karla verður hér í beinni textalýsingu. Nú er rétt rúmlega hálftími í leik og Haukar byrjaðir að hita upp. Gestirnir ætla að láta bíða eftir sér og eru enn inn í klefa.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…