Leik Hauka-U frestað til morgun

Leik Hauka-U og ÍBV í 1. deild karla í handknattleik hefur verið frestað til morguns en ekki var unnt að komast til Eyja í dag vegna veðurs. Nýr leiktími er á morgun kl. 15.00. Staða Hauka-U í 1. deildinni er ágæt en liðið er í 4. sæti með 16 stig eftir 12 leiki. Eyjamenn eru […]

Haukasigur í toppslag

Í kvöld fór fram toppslagur í N1 deild kvenna þegar topplið Hauka tóku á móti Val, sem voru í 3. sæti fyrir leikinn. Fyrirfram mátti búast við hörkuleik og úr varð en jafnt var á öllum tölum og spennan í hámarki. Í lokin náðu Haukastelpur þó að komast þremur mörkum yfir og sigruðu með þremur […]

Toppslagur í N1 deild kvenna á föstudaginn – Haukar-Valur

Sannkallaður toppslagur fer fram á Ásvöllum í N1 deild kvenna föstudaginn 9. janúar nk. þegar Haukar taka á móti Val. Haukar eru í efsta sæti deildarinnar en Valur í því þriðja. Leikurinn hefst kl. 19:00. Handknattleiksdeild Hauka hvetur handknattleiksunnendur til að hefja nýtt ár með því að fjölmenna á leik þessara frændliða. Haukar unnu fyrri […]

Hanna og Sigurbergur handknattleiksfólk Hauka 2008

Stjórn handknattleiksdeildar Hauka hefur valið Hönnu Guðrúnu Stefánsdóttur og Sigurberg Sveinsson sem handknattleiksfólk Hauka árið 2008. Þau eru því í kjöri til íþróttafólks Hauka sem verður valið á Gamlársdag. Hanna Guðrún Stefánsdóttir er 29 ára hornamaður sem hefur verið lykilleikmaður í meistaraflokksliði Hauka um langt árabil. Hún á að baki um 90 landsleiki með A-landsliði […]

Hauka mæta Fylki í 8-liða úrslitum

Í gær í hálfleik á viðureign Hauka og Stjörnunnar í úrslitaleik N1-deildarbikars kvenna var dregið í 8-liða úrslit Eimskipsbikar kvenna. Þar voru Haukar með og fengu útileik gegn Fylki. Haukastelpur þurfa því að heimsækja stelpurnar í Árbænum en leikurinn verður 20.-21. janúar. Aðrir leikir:FH-FramValur-StjarnanKA/Þór-Grótta  

Fram deildarbikarmeistari 2008

Fram eru deildarbikarmeistarar karla eftir sigur á Haukum. Framarar voru betra liðið í leiknum frá fyrstu mínútu og léku Haukar vægast sagt skelfilega nánast allan leikinn og lýsir sá kafli þegar Haukar léku þremur mönnum fleiri en töpuðu kaflanum 2 – 1 leiknum best.   Framarar eru deildarbikarmeistarar 2008 eftir sigur á Haukum 35 – […]

Stjarnan deildarbikarmeistari kvenna

Stjarnan sigraði rétt í þessu N1 deildarbikarkeppni kvenna eftir nauman sigur á Haukum. Leikurinn endaði með eins marks sigri Stjörnunnar 28 – 27 eftir að Hanna Guðrún Stefánsdóttir skaut í stöng úr vítakasti þegar leiktíminn var liðinn. Haukastelpur voru yfir allan leikinn og voru betri aðilinn í öllum leiknum.   Haukastelpur byrjuðu mun betur og […]

Úrslitaleikur deildarbikars kvenna í gangi

Nú fer fram úrslitaleikurinn í N1 deildarbikar kvenna. Leikurinn fer fram í Laugardalshöll og leika Haukar og Stjarnan til úrslita. Eru þetta liðin sem skipa fyrsta og annað sæti N1 deildarinnar. Með því að smella á lesa meira er hægt að sjá hvernig staðan er í leiknum.   Hanna Guðrún skýtur í stöngina og Stjarnan […]

Haukadagur í Höllinni

Eins og fram hefur komið hér á síðunni fór fram í dag deildarbikar karla og kvenna í Laugardalshöll. Þar áttu Haukar tvo fulltrúa, eitt karlalið og eitt kvennalið. Það hefur áður komið fram á heimasíðunni að kvennaliðið er komið í úrslitaleikinn sem fram fer á morgun en liðið mætir þar liði Stjörnunnar sem sigraði Valsstelpur […]

Haukastelpur í úrslit deildarbikars HSÍ og N1

Í dag fara fram undanúrslitaleikir N1 deildarbikars karla og kvenna í Laugardalshöll. Fyrsti leikurinn fór fram núna klukkan 12:00 og mættust þar lið Hauka og Fram í kvennaflokki. Leikurinn endaði með tveggja marka sigri Hauka, 32 – 30, þar sem Framstelpur voru með yfirhöndina nánast allan leikinn.   Framstelpur hófu leikinn að miklum krafi og […]