Haukastelpur í úrslit deildarbikars HSÍ og N1

Í dag fara fram undanúrslitaleikir N1 deildarbikars karla og kvenna í Laugardalshöll. Fyrsti leikurinn fór fram núna klukkan 12:00 og mættust þar lið Hauka og Fram í kvennaflokki. Leikurinn endaði með tveggja marka sigri Hauka, 32 – 30, þar sem Framstelpur voru með yfirhöndina nánast allan leikinn.   Framstelpur hófu leikinn að miklum krafi og […]

Kiwanismót Eldborgar og Hauka

Sunnudaginn 28. desember verður hið árlega Kiwanismót Eldborgar og Hauka haldið á Ásvöllum. Mótið er ætlað börnum í 7. flokkum karla og kvenna og er þetta 21. mótið sem handknattleiksdeild Hauka heldur í samvinnu við Kiwanisklúbbinn Eldborg. Mótið fer fram á Ásvöllum. Þátttákendur á mótinu verða frá Haukum, FH, Gróttu og Stjörnunni og leikið verður […]

Hauka sigur á Stjörnunni í Mýrinni

Stjarnan og Haukar mættust í kvöld í N1-deild karla en leikið var í Garðabæ. Fyrir leikinn munaði sex stigum á liðunum en Stjarnan var í fall sæti með 6 stig. Þetta var síðasti leikur beggja liða fyrir jól í deildinni. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og það var nánast aldrei spurning hvaða lið færi […]

Stjarnan – Haukar í kvöld í N1-deild karla

Síðasti leikur meistaraflokks karla í N1-deild karla fyrir jól fer fram í kvöld. Um er að ræða leik Stjörnunnar og Hauka en leikurinn hefst klukkan 19:30. Þessi sömulið mættust í 1.umferð N1-deildarinnar og þar fóru Haukar með sigur af hólmi 28-21 eftir að hafa verið 15-11 yfir í hálfleik.  Haukaliðið er sem stendur með 12 […]

Enn sigra Haukastelpur

Í dag sóttu Haukastelpur Fylki heim í Árbæinn. Um var að ræða leik efsta og neðsta liðs deildarinnar og því mátti búast við sigri Haukastelpna. Til að byrja með virtust þær hins vegar að lenda í vandræðum en þegar um fyrri hálfleikur var um það bil hálfnaður stungu þær af og sigruðu að lokum með […]

Fjórir Haukamenn í U-19

Haukar eiga fjóra fulltrúa í U-19 ára landsliðið Íslands sem mun æfa helgina 20. og 21. desember næstkomandi. Þeir Stefán H. Stefánsson, Heimir Óli Heimisson, Stefán Sigurmannsson og Tjörvi Þorgeirsson eru í hópnum.     Allur hópurinn Markmenn: Arnór Stefánsson, ÍR Sigurður Arnarson, FH Svavar Ólafsson, Stjarnan Stefán H. Stefánsson, Haukar Aðrir leikmenn: Aron Pálmarsson, […]

Haukastelpur fara í heimsókn í Árbæinn

Á morgun fara fram þrír leikir í N1 deild kvenna. Þetta verða þrír síðustu leikirnir fyrir jólafrí en leikið verður í deildarbikar milli jóla og nýárs. Haukastelpur sækja stelpurnar í Fylki heim í Árbæinn og hefst leikurinn klukkan 16:00. Þarna mætast efsta og neðsta lið deildarinnar. Það er ljóst að Haukastelpur verða í efsta sæti […]

Haukar unnu Víkinga

Haukar unnu Víkinga í kvöld í N1-deild karla með 25 mörkum gegn 22 í Víkinni. Með sigrinum eru Haukar komnir í 2.-5. sæti með 12 stig ásamt FH, Akureyri og Fram. Valsmenn eru á toppnum með 15 stig. Sigur Hauka í kvöld var allt annað en öruggur þrátt fyrir að liðið væri að mæta sigurlausum […]

Haukar heimsækja Víkinga

Á morgun mun meistaraflokkur karla leika gegn botnliði N1-deildar karla, Víkings. Leikurinn byrjar klukkan 19:30 og fer fram í Víkinni í Fossvoginum. Víkingar eru eins og fyrr segir á botni deildarinnar með einungis eitt stig en eina stigið sem þeir hafa fengið í deildinni var gegn Stjörnunni 6.nóvember. Haukar eru í 5.sæti deildarinnar með 10 […]

Myndir úr leik Hauka og HK

Haukar unnu góðan sigur á HK 40-35 í N1-deild kvenna í gærkvöldi. Ljósmyndari www.haukar.is var á leiknum og tók þessar myndir. Umfjöllun um leikinn á handbolti.is Myndir: stefan@haukar.is