Mfl. kk: Haukar – Selfoss
Strákarnir fá Selfyssinga í heimsókn á morgun, þriðjudag, á Ásvelli kl. 19:30. Að venju er frítt fyrir iðkendur og Hauka í Horni en fyrir aðra er miðasala í appinu „Stubbur“ og á Ásvöllum fyrir leik. Áfram Haukar!
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Strákarnir fá Selfyssinga í heimsókn á morgun, þriðjudag, á Ásvelli kl. 19:30. Að venju er frítt fyrir iðkendur og Hauka í Horni en fyrir aðra er miðasala í appinu „Stubbur“ og á Ásvöllum fyrir leik. Áfram Haukar!
Ásta Björt Júlíusdóttir og Birta Lind Jóhannsdóttir, leikmenn mfl. kvenna, hafa verið valdnar í æfingahóp B landsliðs kvenna. Hópurinn æfir í október en B landsliðið heldur til Tékklands í nóvember til þáttöku á æfingamóti. Nýverið réði HSÍ Hrafnhildi Ósk Skúladóttur og Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur í þjálfarateymi kvennalandsliðsins og verða þær með umsjón yfir B landsliði kvenna ásamt…
Haukastelpur í yngri landsliðum kvenna Elín Klara Þorkelsdóttir og Thelma Melsteð, leikmenn 3 flokks og meistaraflokks kvenna, munu leika með U-18 ára landsliði kvenna er liðið leikur tvo vináttulandsleiki gegn Dönum 8. og 9. október. Leikirnir munu fara fram í Danmörku. ~ Þjálfarar U-16 og U-15 ára landsliðs kvenna hafa boðað til æfinga 8-10. október…
Sex Haukastrákar hafa verið kallaðir til æfinga hjá U-20 landsliði Íslands helgina 2-3 október. Þetta eru þeir Guðmundur Bragi Ástþórsson, Kristófer Jónasson, Magnús Gunnar Karlsson, Jakob Aronsson, Róbert Örvarsson og Þorfinnur Máni Björnsson. Æfingarnar eru undirbúningur fyrir æfingaleik við Dani í landsliðsvikunni í byrjun nóvember. Við óskum strákunum góðs gengis á æfingunum!
Það var nóg að gera í handboltanum um helgina eins og svo oft áður en bæði meistaraflokks lið Hauka og U-lið karla áttu stórleiki.. Mfl. karla fóru í Mosfellsbæinn á föstudagskvöldinu og léku gegn Aftureldingu. Leikurinn endaði með jafntefli 26-26 en staðan í hálfleik var 14-13 fyrir Aftureldingu. Mörk: Stefán Rafn Sigurmannsson 8/5, Adam Haukur Baumruk…
Það er alltaf mikið í gangi hjá handboltanum í Haukum og næstkomandi helgi er engin undantekning. Krefjandi leikir framundan og við hvetjum Haukafólk til að koma á völlinn og styðja við liðin. Mfl. kk: Afturelding – Haukar Föstudaginn 24. sept kl. 19:30 í Varmá Mfl. kvk: Haukar – Fram Laugardaginn 25. sept kl. 16:30 á…
Það verður sannkölluð handboltaveisla á Ásvöllum á morgun, laugardag, en bæði lið meistaraflokkana hefja leik í Olís deildinni ´21-´22. Stelpurnar taka á móti HK og hefst leikurinn kl. 16:00 en strákarnir fylgja svo strax á eftir kl. 18:00 þegar þeir taka á móti Fram. Það verður því mikið um að vera, Dominos pizzur og sjoppan…
Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson (tekin af handbolti.is) Meistaraflokkur kvenna er kominn í 8-liða úrslit Coca Cola bikarsins eftir glæsilegan sigur á fersku liði Ír síðastliðið föstudagskvöld. Leikurinn var jafn framan af og var staðan í hálfleik 11-13 Haukum í vil. Haukastelpur mættu af fullum krafti í seinni hálfleik og tókst að auka forskotið enn frekar og…
Meistaraflokkur karla í handbolta tekur þátt í EHF European Cup og mun leika gegn liði Parnassos Strovolou í heimalandi þeirra, Kýpur, dagana 16 og 17. október næstkomandi. Lið Parnassos Strovolou hefur tekið þátt í Evrópukeppni síðastliðin 4 ár. Haukar gerðu samkomulag við liðið um að spila báða leikina úti og mun liðið ferðast frá Íslandi 14….
Það er stór vika framundan hjá handboltanum en bæði meistaraflokksliðin keppa í 16 liða úrslitum Coca Cola bikarsins. Strákarnir hefja leik á fimmtudaginn, 9. september, í Kaplakrika gegn erkifjendum okkar í FH og hefst leikurinn kl. 20:30. Stelpurnar spila gegn ÍR, föstudaginn 10. september kl. 19:30 í Austurbergi. Við hvetjum allt okkar Haukafólk til…