Haukar eru alltaf bestir

Þessi grein er bönnuð öðrum en Haukamönnum !!! Það er oft gaman að leika sér að tölum og úrslitum og stundum hægt að fá hvaða útkomu sem er ef hlutirnir eru settir þannig fram. Ef við skoðum úrslit í nokkrum leikjum í Meistaradeildinni getum við sé hvað við Haukar erum rosalega góðir. Hér eru nokkrar […]

Vardar Skopje-Haukar

Leikurinn í Meistaradeildinni hjá stákunum okkar við Vardar Skopje í Makedoníu hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma. Við skulum senda strákunum okkar sterka og góða strauma yfir hafið. Leikurinn verður örugglega erfiður og mjög erfitt er að sækja Makedoníumenn heim. Eftir 10 mín. leik er staðan 4-5. Staðan eftir 25 mín er 8-13 og við […]

Haukar-Fram mfl.kvenna

Stelpurnar unnu glæsilegan stórsigur 35-12 á Fram á Ásvöllum í dag. Það var jafnt fyrstu mínútur leiksins, 1-1, 2-2 og 3-3. Þá tóku stelpurnar okkar öll völd á vellinum og breyttu stöðunni í 13-3. Staðan í hálfleik var 15-5. Seinni hálfleikur var á sömu lund, forystan jókst 20-7, 26-8, 30-10 og lokatölur 35-12. Allir leikmenn […]

Meistaradeildin – Makedonía

Það er nóg að gera hjá stákunum okkar og stutt var stoppið á landinu. Þeir komu heim frá Barcelona seint á sunnudagskvöldið, spiluðu við Breiðablik í gærkvöldi og héldu síðan utan í morgun áleiðis til Makedoníu. Þeir stoppa í Vín í dag og fljúga þaðan á morgun, föstudag til Makedoníu og lenda í Skopje um […]

Breiðablik-Haukar mfl.ka.

Strákarnir unnu öruggan skyldusigur á Breiðablik í Smáranum í kvöld. Leikurinn endaði 26-33 og í hálfleik var staðan 10-19. Leikurinn var frekar daufur á að horfa, strákarnir okkar spiluðu á hálfum hraða enda mótstaðan ekki mikil. Mikið var um mistök hjá báðum liðum og eins hjá þeim svartklæddu. Það var kannski ekki von á öðruvísi […]

Tilboð á framköllun

Filmur og Framköllun bjóða kostatilboð til Barcelonafara. Þeir fá meðfylgjandi mynd senda í pósti og fá afslátt gegn framvísun miðans.

Haukar – Barcelona meira

Haukamaðurinn „Haukari“ eins og hann er kallaður á spjallþráðum sport.is lýsir stemmingunni hér heima einstaklega vel, látum hans orð fljóta hér með. Ég horfði því miður á leikinn í gegnum sjónvarpið að þessu sinni á hinni frábæru sjónvarpsstöð Sýn sem hefur tekið að sér að hefja handboltan til vegs og virðingar á ný. Við hittumst […]

Haukar á leid heim

Klukkan er að verða 3 hér í Barcelona og þreyttir FerðaHaukar eru að klára að pakka í töskur og gera sig klára fyrir heimferð. Við förum i loftið kl. 19:00 að staðartíma og lendum í Keflavík um hálf ellefu. Flugstjórinn okkar og forseti, Þorgeir Haraldsson hefur lofað góðu flugi, enga ókyrrð eða annað. Hér eru […]

Haukar í Barcelona

FerðaHaukar í Barcelona biðja fyrir kærar kveðjur heim. Héðan er auðvitað allt frábært ad frétta eftir ad heimsklassaliðið Barcelona rétt marði jafntefli á frábæru Haukaliði. Stemmingin hér er ólýsanleg, menn æptu og öskrudu þegar leiknum lauk og grétu gegnum gleðitárin. Vid tökum stórt upp í okkur og segjum að þessi úrslit séu ein þau bestu […]