Barcelona – Haukar

VÁÁÁÁÁ Barcelona rétt marði jafntefli gegn gífurlega sterku liði Hauka nú rétt í þessu, ótrúlegur leikur þar sem okkar strákar höfðu yfirhöndina nánast allan leikinn. Birkir Ívar með stórleik ásamt bara öllu liðinu, þvílikt og annað eins. Þeir fylgdu eftir góðum leik hér heima á móti Magdeburg þar sem við vorum grátlega nálægt því að […]

Leikurinn á eftir

Leikurinn er náttúrulega kl. 15:30 að íslenskum tíma en ekki 16:30. Útsendingin á {Tengill_19} hefst kl. 15:25.

Myndirnar komnar

Myndirnar loksins komnar frá Magdeburgar leiknum(ansans tölvudrasl). En ég gleymdi náttúrulega að nefna það að stelpurnar okkar eru með í för til Spánar og ætla að taka nokkra leiki og auðvitað styðja við bakið á strákunum ásamt öllum hinum í leiknum gegn börsungum.

Nokkrir punktar í tilefni dagsins

Myndir frá Magdeburgar leiknum koma loksins í dag eftir langa bið. Þær eru þó nokkrar þannig að þið takið bara frá einhverjar mínútur í kvöld. Haukahalarófan er kominn til Spánar og eru í þessum töluðu orðum á leiðinni á hótelið. Hópurinn lagði af stað um sjöleytið í morgun og vonandi koma fréttir og myndir á […]

Haukar-Magdeburg

Strákarnir fylgdu eftir stórglæsilegri innkomu með magnaðri spilamennsku sem dugði næstum til að vinna eitt af sterkustu handknattleiksliðum heims. Leikurinn við þýska liðið SC-Magdeburg var hin mesta skemmtun frá byrjun til enda og rúmlega það. Strákarnir heldu í þýsku meistarana allan fyrri hálfleikinn og var staðan í hálfleik 18-19 þeim þýsku í vil. Seinni hálfleikurinn […]

Haukar-Magdeburg

Handboltaveislan heldur áfram. Sunnudaginn 16. nóvember kl. 20.00 spila Haukar við stórliðið Magdeburg með Íslendingana Alfreð Gíslason og Sigfús Sigurðsson í broddi fylkingar. Þetta er síðari leikur Hauka gegn Magdeburg í B-riðli Meistaradeildarinnar og verður allt lagt undir til að leggja þá að velli. Magdeburg er eitt besta félagslið Evrópu og er með stjörnur í […]

Uppselt til Barcelona

Það er uppselt í Barcelonaferðina, rúmlega 190 manns hafa gengið frá staðfestingu og vélin orðin TROÐFULL. Eins og sönnum FerðaHaukum sæmir ætlum við að hafa rosalega gaman þarna suðurfrá. Klára verður greiðslur fyrir helgina og verður ferðanefndin á skrifstofunni á Ásvöllum í kvöld frá kl. 19.00 til kl. 21.00, miðvikudag kl. 18.00 til 21.00, föstudag […]