Haukar-GróttaKR ESSÓdeild kvenna

Stelpurnar unnu góðan baráttusigur á GróttuKR á Ásvöllum í dag 26-23. Leikurinn var jafn í upphafi, 1-1, 2-2, 3-3 en þá kom slakur kafli hjá Haukum og komust gestirnir í 4-7. Haukar náðu síðan að jafna 8-8 og var jafnt á næstu mínútum 9-9 og 10-10. Þá gáfu stelpurnar okkar aðeins í og náðu þriggja […]

ÍBV-Haukar ESSÓdeild karla

Það gekk illa hjá strákunum að komast til Eyja í morgun, en þeir áttu aftur á móti ekki í neinum vandræðum með lið ÍBV á handboltavellinum og unnu stórsigur 19-33. Markahæstir voru Jason, Robertas og Þorkell með 6 mörk hver. Fátt virðist stöðva strákana þessa dagana og eru þeir greinilega komnir á beinu brautina.

Leikir helgarinnar

Minnum á leikinn hjá stelpunum á morgun kl. 16.30 á Ásvöllum við GróttuKR. Þetta er síðasta leikurinn hjá þeim fyrir jól, svo endilega öll að mæta og hvetja þær og kveðja fyrir jólafrí. Strákarnir spila á morgun við ÍBV út í Eyjum kl. 14.00. Þeir eru aldeilis ekki á leið í jólafrí, eiga eftir fimm […]

Fram-Haukar ESSÓdeild karla

Strákarnir unnu öruggan sigur 26-32 er þeir heimsóttu Fram í kvöld. Manni virtist ljóst strax á fyrstu mínútum leiksins að þeim sem blésu í flauturnar var ekki vel við Aron okkar Kristjánsson og kórónaði rautt spjald (3x2min) í byrjun seinni hálfleiks þá skoðun. Aron var reyndar ekki sá eini sem fékk að lúta fyrir þeim […]

Ka/Þór-Haukar SS bikar kvenna

Stelpurnar okkar unnu öruggan sigur 21-28 á KA/Þór fyrir norðan í kvöld í 8-liða úrslitum SS bikarsins. Þær höfðu yfirhöndina allan leikinn og aldrei var spurning hvoru megin sigurinn lent. Frábært stelpur að vera komnar í 4-liða úrslit.

Fróðleikur

Til fróðleiks fyrir þá sem ekki vita að þá er alltaf hægt að sjá stöðuna í bæði Esso deild karla og Esso deild kvenna hér á Haukasíðunni. Það er að finna undir „Meistaraflokkar“

Haukar-Umfa ESSÓdeild karla

Strákarnir unnu öruggan sigur á Aftureldingu 27-20 á Ásvöllum í kvöld. Gestirnir skoruðu fyrsta markið en síðan tóku okkar menn öll völd á vellinum og aldrei var spurning hvernig færi. Þeir komust í 6-2, 8-3, 10-4, 14-9 og staðan í hálfleik var 17-11. Afturelding skoraði fyrstu þrjú mörk seinni hálfleiks og minnkaði muninn í 17-14 […]

Stjarnan-Haukar ESSOdeild kvenna

Stelpurnar okkar unnu stórglæsilegan sigur 19-24 á Stjörnunni í Garðabæ í dag. Leikurinn byrjaði jafnt, Stjarnan fyrri til að skora en Haukar jöfnuðu jafnharðan. Okkar stelpur komust fyrst yfir 4-5 og náðu síðan góðri forystu 6-9 um miðjan fyrri hálfleik. Voru að spila fína vörn og góðan sóknarbolta. Þá kom kafli þar sem ekkert gekk […]

ÍR-Haukar ESSÓdeild karla

Strákarnir unnu frábæran sigur 22-25 er þeir heimsóttu ÍR-inga í kvöld. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik, liðin skiptust á að skora en svo sigu Haukar framúr og komust í 10-13 en heimamenn náðu að minnka muninn rétt fyrir leikhlé í 11-13. ÍR-ingar skorðu fyrsta mark seinni hálfleiks en þá tóku okkar menn við sér […]

Herrakvöld hkd. Hauka

Hið sívinsæla herrakvöld Hauka verður haldið í veislusal Hauka á Ásvöllum, laugardaginn 23. nóvember. Ræðumaður kvöldsins verður Siglfirðingurinn og þingmaðurinn Kristján Möller. Fyndnasti maður Íslands Sveinn Waage mun sjá um skemmtiatriði sem vel eru umræðu verð. Veislustjórn verður í höndum Gissa löggu Miðaverð : kr. 2,500.- Húsið opnar kl. 19:30 Borðhald hefst kl. 20:30 Sýnum […]