Það gekk illa hjá strákunum að komast til Eyja í morgun, en þeir áttu aftur á móti ekki í neinum vandræðum með lið ÍBV á handboltavellinum og unnu stórsigur 19-33.
Markahæstir voru Jason, Robertas og Þorkell með 6 mörk hver.
Fátt virðist stöðva strákana þessa dagana og eru þeir greinilega komnir á beinu brautina.