Haukar-Umfa ESSÓdeild karla

Strákarnir unnu öruggan sigur á Aftureldingu 27-20 á Ásvöllum í kvöld. Gestirnir skoruðu fyrsta markið en síðan tóku okkar menn öll völd á vellinum og aldrei var spurning hvernig færi. Þeir komust í 6-2, 8-3, 10-4, 14-9 og staðan í hálfleik var 17-11. Afturelding skoraði fyrstu þrjú mörk seinni hálfleiks og minnkaði muninn í 17-14 en þá tóku okkar strákar við sér og juku forskotið í 21-14, 25-16 og lokatölur 27-20.
Strákarnir voru að spila fína vörn á köflum og í sókninni sáust oft snilldartilþrif. En á milli datt leikur þeirra niður og kannski erfitt að halda einbeitingu þegar andstaðan er ekki mikil