Herrakvöld hkd. Hauka

Hið sívinsæla herrakvöld Hauka verður haldið í veislusal Hauka á Ásvöllum, laugardaginn 23. nóvember.
Ræðumaður kvöldsins verður Siglfirðingurinn og þingmaðurinn Kristján Möller.
Fyndnasti maður Íslands Sveinn Waage mun sjá um skemmtiatriði sem vel eru umræðu verð.
Veislustjórn verður í höndum Gissa löggu

Miðaverð : kr. 2,500.-
Húsið opnar kl. 19:30
Borðhald hefst kl. 20:30

Sýnum styrk okkar Haukamenn og mætum með gesti
Vinsamlega látið skrá ykkur tímanlega í síma 525-8700
ÁFRAM HAUKAR