ÍSLANDSMEISTARAR 2002

Stelpurnar okkar unnu frábæran sigur á Stjörnunni í kvöld 19-18 á Ásvöllum og unnu þar með ÍSLANDSMEISTARATITILINN 2002. Leikurinn var æsispennandi og hin mesta skemmtun fyrir hina fjölmörgu áhorfendur sem lögðu leið sína á Ásvelli. Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með en stelpurnar okkar þó alltaf skrefinu á undan og komust í 10-6 […]

Stjarnan-Haukar úrslit

Stelpurnar okkar unnu frábæran stórsigur á Stjörnunni í Garðabænum í dag 18-25. Þær komu mjög vel stemmdar til leiks og stjórnuðu leiknum frá upphafi og ætluðu sér ekkert annað en sigur og það gekk eftir. Fyrri hálfleikur var mjög góður, vörnin small og þá kom markvarslan og hraðaupphlaupin og staðan var 9-16 fyrir okkur í […]

KA-Haukar 4-liða úrslit

Jæja, þá er því lokið. Eins og alþjóð líklega veit þá töpuðu strákarnir okkar fyrir KA 27-26 fyrir norðan í gærkvöldi og féllu þar með úr keppni. Leikurinn var jafn og spennandi og og skiptust liðin á að hafa forystu í fyrri hálfleik sem lauk með jafntefni 14-14. Í seinni hálfleik náðu norðanmenn yfirhöndinni en […]

Haukar-Stjarnan úrslit kv.

Sumarið er komið og stelpurnar unnu frábæran sigur á Stjörnunni á Ásvöllum í dag. Leikurinn endaði 25-22 og staðan í hálfleik var 11-8. Leikurinn var nokkuð jafn en stelpurnar okkar þó alltaf með yfirhöndina. Mikil spenna var í lokin er Stjarnan náði að jafna 18-18, 19-19, 20-20 en Haukastelpur héldu haus og náðu aftur yfirhöndinni […]

Haukar-KA 4-liða úrslit

Seinni hálfleikurinn var vægast sagt ömurlegur hjá öllum nema KA-mönnum. Menn komu engan veginn tilbúnir úr leikhléi og misstu allan damp. Staðan í lok venjulegs leiktíma var 27-27 og því framlengt og höfðu KA-menn yfirhöndina og töpuðum við 32-34. En það kemur leikur eftir þennan leik og strákarnir mæta galvaskir norður yfir heiðar og taka […]

Haukar – KA hálfleikstölur

Staðan í hálfleik er 16-8 fyrir heimamenn. Gestirnir náðu góðri byrjun og komust í 0-3 en strákarnir tóku sig saman og náðu yfirhöndinni. Jón Karl og Aron hafa verið fremstir í sóknarleik okkar manna og vörnin góð. Í lok hálfleiksins skoraði Aron svo úr glæsilegu sirkusmarki. 00:44 || 0 – 1 KA: Halldór J. Sigfússon […]

Stjarnan-Haukar úrslit kv.

Ekki náðu stelpurnar að klára leikinn í Garðabænum og töpuðu 22-21. Þær voru komnar með góða forystu 11-16 og virtust hafa leikinn í höndum sér. En eitthvað klikkaði og Stjarnan náði að jafna og komast yfir með marki úr aukakasti eftir að leiktíma lauk. Þó staðan sé 2-0 fyrir Stjörnunni eru úrslitin engan veginn ráðin. […]

Akureyrarferð

Örfá sæti eru laus með vélinni til Akureyrar í annan leik Hauka við KA föstudaginn 26. apríl. Áhugasamir sendi póst á haukar@haukar.is. Fyrstir koma, fyrstir fá.

Haukar – Stjarnan Úrslit 1.l

Stelpurnar okkar riðu ekki feitum hesti þegar þær tóku á móti grönnum sínum úr Garðabænum. Leikurinn byrjaði vel og leit hann út fyrir að verða hörkuspennandi viðureign. Staðan í hálfleik var 9-13 fyrir gestina. Stjörnustúlkur sigu samt lengra fram úr og áttu glimrandi leik með skytturnar þrjár í farabroddi á meðan Haukastúlkur spiluðu skelfilega báðum […]

FH – Haukar 8 liða úrslit 2.le

Heimamenn byrjuðu með miklum látum og ætluðu greinilega að standa sig betur en á miðvikudaginn var. Haukastrákarnir voru samt á því að leyfa fimleikafélagsköllunum að komast í sumarfrí. Haukarnir juku muninn jafnt og þétt og staðan í hálfleik var 11-17. Seinni hálfleikurinn var í sama forminu þar til um miðbik hans fór Jonni að verja […]