Stjarnan-Haukar úrslit

Stelpurnar okkar unnu frábæran stórsigur á Stjörnunni í Garðabænum í dag 18-25. Þær komu mjög vel stemmdar til leiks og stjórnuðu leiknum frá upphafi og ætluðu sér ekkert annað en sigur og það gekk eftir. Fyrri hálfleikur var mjög góður, vörnin small og þá kom markvarslan og hraðaupphlaupin og staðan var 9-16 fyrir okkur í hálfleik. Stjarnan kom einbeitt úr leikhléi og náði að minnka muninn í fjögur mörk, en þá settu stelpurnar okkar aftur í gírinn og keyrðu yfir andstæðinginn og sigurinn var í raun aldrei í hættu.

Það verður því hreinn úrslitaleikur á Ásvöllum á mánudagskvöldið kl. 20.15 og kemur þá í ljós hver hampar Íslandsmeistaratitlinum. Hjá okkar stelpum kemur að sjálfsögðu ekkert annað til greina en sigur og hvetjum við alla Hauka til að mæta og styðja stelpurnar alla leið. Þær hafa sýnt frábæran karakter í síðustu tveim leikjum og halda því að sjálfsögðu áfram í næsta leik og með góðum stuðningi áhorfenda er allt hægt.