Haukar-Stjarnan úrslit kv.

Sumarið er komið og stelpurnar unnu frábæran sigur á Stjörnunni á Ásvöllum í dag. Leikurinn endaði 25-22 og staðan í hálfleik var 11-8. Leikurinn var nokkuð jafn en stelpurnar okkar þó alltaf með yfirhöndina. Mikil spenna var í lokin er Stjarnan náði að jafna 18-18, 19-19, 20-20 en Haukastelpur héldu haus og náðu aftur yfirhöndinni og kláru leikinn með stæl.

Nú er staðan 2-1 fyrir Stjörnunni svo það er ekkert annað fyrir Hauka, bæði leikmenn og áhorfendur, að mæta full af baráttu í Garðabæinn á laugardag og klára þann leik.

Áfram Haukar.