Haukar – Stjarnan Úrslit 1.l

Stelpurnar okkar riðu ekki feitum hesti þegar þær tóku á móti grönnum sínum úr Garðabænum. Leikurinn byrjaði vel og leit hann út fyrir að verða hörkuspennandi viðureign. Staðan í hálfleik var 9-13 fyrir gestina. Stjörnustúlkur sigu samt lengra fram úr og áttu glimrandi leik með skytturnar þrjár í farabroddi á meðan Haukastúlkur spiluðu skelfilega báðum megin vallarins. Leikurinn endaði með fimm marka mun 17-22 og staðan því 0-1 fyrir Stjörnuna. Næsti leikur er í Ásgarði á mánudaginn klukkan 20:15.