FH – Haukar 8 liða úrslit 2.le

Heimamenn byrjuðu með miklum látum og ætluðu greinilega að standa sig betur en á miðvikudaginn var. Haukastrákarnir voru samt á því að leyfa fimleikafélagsköllunum að komast í sumarfrí. Haukarnir juku muninn jafnt og þétt og staðan í hálfleik var 11-17. Seinni hálfleikurinn var í sama forminu þar til um miðbik hans fór Jonni að verja nokkur dauðafæri og fimleikafélagsmenn náðu að minnka bilið niður í eitt mark. Þá sögðu strákarnir okkar, hingað og ekki lengra, það verður ekkert slys í kveld og juku muninn aftur og kláruðu leikinn. Lokatölur 28-23. Rúnar sat á bekknum allan leikinn vegna meiðsla og hinum megin vallarins var Héðinn Gilsson á sínum stað öllum að óvörum.