Haukar – FH 8 liða úrslit 1.le

Haukar unnu frábæran sigur á Fimleikafélaginu á Ásvöllum í kvöld 26-17. Strákarnir okkar byrjuðu á fullum krafti og voru yfir allan leikinn. Vörnin var fantagóð og markvarslan eftir því og liðið allt að standa sig frábærlega. Staðan í hálfleik var 12-8 og keyrslan hélt áfram í seinni hálfleik og mestur varð munurinn 11 mörk. Þegar […]

Úrslit mfl.kvenna

Stelpurnar spila við Stjörnuna í úrslitum og verður fyrsti leikur um næstu helgi. Þessi lið hafa marga hildi háð á undanförnum árum og ekki von á öðru en boðið verði uppá blóð, svita og tár. Einnig spennu og meiri spennu og ætti enginn að láta þessi leiki framhjá sér fara. Allavega er nokkuð ljóst að […]

Víkingur-Haukar mfl.kv.

Stelpurnar unnu öruggan sigur 23-31 á Víking í Víkinni í dag í öðrum leik í 4-liða úrslitum. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn, Haukarnir þó ávallt skrefinu á undan Staðan í hálfleik var 12-12 og allt útlit fyrir spennandi leik. En Haukastelpurnar nýttu leikhléið vel og komu mjög vel stemmdar í seinni hálfleikinn, settu í gírinn […]

8-liða úrslit karla

Nú er ljóst að strákarnir mæta FH í 8-liða úrslitum. Fyrsti leikur verður á Ásvöllum miðvikudaginn 17. apríl kl. 20.00. Annar leikur í Kaplakrika á föstudag 19. apríl kl. 20.00 og ef til þriðja leiks kemur verður hann á Ásvöllum sunnudaginn 21. apríl kl. 14.00. Búast má við ekta Hafnarfjarðarslag og að sjálfsögðu mæta allir […]

Valur-Haukar mfl.ka

Strákanir fóru í heimsókn í Valsheimilið í dag. Skemmst er frá því að segja að þeir töpuðu leiknum 31-25. Leikurinn skipti engu máli um stöðuna í deildinni. Haukarnir á toppnum og búnir að vinna deildarmeistaratitilinn. Fyrri hálfleikur var jafn og Valsmenn einu marki yfir í hálfleik. Í seinni háfleik slökuðu okkar menn á og Valsmenn […]

Afmælisdagur

Knattspyrnufélagið Haukar, þ.e. félagið okkar á afmæli í dag. Var stofnað 12. apríl 1931. Við óskum félaginu og okkur sjálfum til hamingju með daginn.

Haukar-Víkingur mfl.kv.

Stelpurnar unnu frábæran sigur á Víkingi á Ásvöllum í kvöld í fyrsta leik í 4-liða úrslitum. Lokatölur urðu 30-16. Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með, en Haukar þó alltaf 2 til 4 mörkum yfir. Þegar um 10 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik sögðu okkar stelpur hingað og ekki lengra, skelltu í lás […]

Fréttatilkynning

Handknattleiksdeild Hauka hefur endurnýjað samninga við þjálfara meistaraflokka karla og kvenna. Gerður hefur verið nýr þriggja ára samningur við Viggó Sigurðsson og eins árs samningur við Gústaf Adolf Björnsson.Árangur meistaraflokks karla undir stjórn Viggós hefur verið frábær síðustu tvö árin eins og allir sem fylgjast með handbolta vita. Flestir tiltlar sem hafa verið í boði […]

4-liða úrsl. kv. – BREYTING

Vegna þess að leikmenn Gróttu/KR eru strandaglópar í Vestmannaeyjum, þá hefur leikdögum í 4ra liða úrslitum verið breytt og verða sem hér segir: 1. leikur Ásvellir fimmtudaginn 11. apríl kl. 20:00 2. leikur Víkin sunnudaginn 14. apríl kl. 14:00 3. leikur ef til kemur á Ásvöllum þriðjudaginn 16. apríl kl. 20:00

4-liða úrslit kvenna

Nú er ljóst að stelpurnar eiga við Víking í 4-liða úrslitum. Fyrsti leikurinn verður á Ásvöllum á miðvikudag kl. 20.00, annar leikur í Víkinni á föstudag kl. 20.00 og ef til þriðja leiks kemur verður hann á sunnudag kl. 14.00 á Ásvöllum. Búast má við mjög erfiðum en jafnframt fjögugum og skemmtilegum leikjum og þurfa […]