Víkingur-Haukar mfl.kv.

Stelpurnar unnu öruggan sigur 23-31 á Víking í Víkinni í dag í öðrum leik í 4-liða úrslitum. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn, Haukarnir þó ávallt skrefinu á undan Staðan í hálfleik var 12-12 og allt útlit fyrir spennandi leik. En Haukastelpurnar nýttu leikhléið vel og komu mjög vel stemmdar í seinni hálfleikinn, settu í gírinn og keyrðu yfir Víkinga, tóku Gerði Betu úr umferð og leikur andstæðinganna hrundi. Stelpurnar okkur sýndu sýnar bestu hliðar, vörnin alveg mögnuð og tók fjölda bolta sem og Jenny sem varði vel í seinni hálfleik. Nína var markahæst með 14 mörk og átti frábæran leik.
Til hamingju stelpur, frábær sigur – nú er komið að úrslitunum og gamanið rétt að byrja. Áfram Haukar.

Víkingur-Haukar mfl.kv.

Stelpurnar unnu stórsigur á Víkingum í Víkinni í dag 12-24. Leikurinn var jafn í byrjun, staðan 5-5 um miðjan fyrri hálfleik, en í hálfleik var staðan 6-10. Í seinni hálfleik tóku Haukastelpur öll völd og leikurinn endaði sem fyrr segir 12-24 fyrir Hauka. Þær spiluðu fantavörn og Jenny var góð í markinu. Sóknin var aðeins stirð á köflum, en oft sáust góðar fléttur og góð hraðaupphlaup. Til hamingju með sigurinn Haukar.