Kveðja frá Póllandi
Strákarnir eru komnir heilu og höldnu til Póllands. Vel var tekið á móti þeim, hótelið mjög gott og maturinn góður. Það er æfing kl. 10.00 í fyrramálið og allir eru tilbúnir í leikinn. Fylgist með á morgun, hálfleikstölur og fleira kemur, þar sem við höfum fréttaritarann með hattinn á staðnum.
